Tvær evrur breyttust í hundrað milljónir Jakob Bjarnar skrifar 2. nóvember 2015 10:41 „En, nei, jólin verða ekkert vandamál þetta árið. Ég býst ekki við því,“ segir Hrólfur sem á nokkur börn. „Það verða sæmilega ríflegar jólagjafir þetta árið.“
Maður nokkur datt í lukkupottinn að morgni föstudags; hann vann 102 milljónir á Betsson. Um er að ræða Reykvíking á fimmtugsaldri, hann er atvinnulaus en hefur starfað sem bílstjóri. Hann er margra barna faðir og segir, í samtali við Vísi, að jólagjafirnar verði ekkert vandamál þetta árið.Bílaflotinn endurnýjaður „Jújú, það er ekki laust við að maður sé ánægður með þetta. Ég hef verið að svífa rólega til jarðar um helgina og kanna hvernig á að snúa mér í þessu,“ segir maðurinn sem ekki vill láta nafns síns getið, en verður hér nefndur Hrólfur. Hann segist vilja fá ráðrúm til að kanna hvernig þetta allt líti út og hvernig sé best sé að snúa sér í þessu til að mynda gagnvart skatti og öðru slíku. Það er eitt og annað sem þarf að athuga.En, eitthvað hlýtur nú að liggja fyrir, hvernig þú ætlar að verja fénu? „Jú, ætli það verði ekki eitthvað sem snýr að húsnæðismálum og svo kannski endurnýjar maður bílaflotann,“ segir hinn heppni Reykvíkingur, sem sér jafnframt fyrir sér að það rætist úr atvinnumálum í kjölfarið.Fótboltaáhugamaður og tippari En, hvernig atvikaðist þetta, hvaða leikur var þetta? Um er að ræða lukkuhjól, Betsson Classic Ring the Bells. Þetta er leikur sem er samtengdur við aðra leiki, það er ef menn fá sérstök bónustákn færast þeir inn á svæði þar sem möguleiki er á bronspotti. Þar eru smávinningar og svo örvar sem færa spilara áfram og þannig gekk þetta fyrir sig hjá okkar manni, sem fékk örvar sem leiddu hann áfram að gullpottinum, sem datt. „Það eru tvær evrur sem lagðar eru undir á snúninginn þannig að tvær evrur breyttust í 102 milljónir. Ég er fótboltaáhugamaður og hef gaman að því að tippa á enska boltann. Og legg stundum á eitthvað svona til hliðar. Og þessi varð niðurstaðan,“ segir lukkunnar Hrólfur. Hann segist hafa þann háttinn á að kaupa sér inneign fyrir um fimm til tíu þúsund krónur um hver mánaðarmót og það dugi oftast vel út mánuðinn.Börnin fá rausnarlegar jólagjafir „Maður nær að gera eitthvað fyrir það og halda sjó út mánuðinn. Þetta er svona mín leið til að spila í lottó eins og margir gera. Ég er mikill fótboltaáhugamaður og hef gaman að því að tippa. Og það eru betri líkur á Betsson en á íslenskum veðmálasíðum,“ segir Hrólfur. Hann segir að sinn nánasti hringur ráðleggi honum að flýta sér hægt. „En, nei, jólin verða ekkert vandamál þetta árið. Ég býst ekki við því,“ segir Hrólfur sem á nokkur börn. „Það verða sæmilega ríflegar jólagjafir þetta árið.“
Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Innlent Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Innlent Fleiri fréttir Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Sjá meira