Greiðsluaðlögun einstaklinga er komin til að vera Ásta S. Helgadóttir skrifar 21. apríl 2015 09:30 Stærsta verkefni embættis umboðsmanns skuldara frá stofnun þess hefur verið að annast framkvæmd greiðsluaðlögunar fyrir einstaklinga. Þá hefur embættið jafnframt sinnt ráðgjöf fyrir einstaklinga í greiðsluerfiðleikum, tekið á móti erindum er snerta málefni skuldara, annast eftirlit með endurútreikningi ólögmætra gengistryggðra lána o.fl. Nýjasta verkefni umboðsmanns skuldara er að taka á móti umsóknum um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta. Í almennri umræðu um embættið hefur undirrituð orðið vör við þann misskilning að það verði eingöngu starfandi tímabundið, líkt og embætti sérstaks saksóknara. Enginn slíkur tímarammi hefur verið settur á embættið með lögum. Jafnvel þótt embættið tæki á sig breytta mynd er ljóst að úrræði greiðsluaðlögunar þarf að vera í boði fyrir almenning þar sem það hefur margsannað mikilvægi sitt. Í greiðsluaðlögun einstaklinga er leitast við að ná frjálsum samningum við kröfuhafa, með það að markmiði að koma á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu, sbr. lög um greiðsluaðlögun frá árinu 2010. Með úrræðinu fá einstaklingar í verulegum greiðsluerfiðleikum þá aðstoð sem þeir þarfnast í stað þess að lenda á vanskilaskrá eða bú þeirra sé tekið til gjaldþrotaskipta. Endurskipulagning fjárhags getur þannig veitt heimilum lausn undan þungum klyfjum og veitt von til framtíðar.Úrræðið í stöðugri þróunVakin skal athygli á því að úrræði greiðsluaðlögunar hefur staðið almenningi til boða á Norðurlöndum um langa hríð, t.d. komu lög um greiðsluaðlögun til framkvæmda í Noregi árið 1993. Íslendingar eru því seinastir Norðurlandaþjóða til að innleiða slíkt úrræði. Íslenskt lagaumhverfi þarfnast engu að síður endurskoðunar þar sem úrræðið er í stöðugri þróun og ýmsir vankantar hafa komið upp í ferlinu frá því lögin tóku gildi fyrir tæpum fimm árum. Úrræði greiðsluaðlögunar er opið öllum þeim sem uppfylla ákveðin lagaleg skilyrði og berast nú að meðaltali um 30 umsóknir í mánuði hverjum. Þess skal getið að tímabundin frestun greiðslna, svokallað greiðsluskjól, hefst þegar umboðsmaður skuldara hefur samþykkt umsókn, en ekki við móttöku umsóknar líkt og gilti fyrir 1. júlí 2011. Greiðsluskjól er ekki úrræði í sjálfu sér og varir þar til samningur um greiðsluaðlögun hefur tekið gildi eða umsókn fellur úr gildi. Rúmlega 2.700 greiðsluaðlögunarsamningar hafa verið samþykktir og í 97% þeirra hefur verið samið um hlutfallslega eða fulla eftirgjöf samningskrafna. Umboðsmaður skuldara hvetur þá sem vilja kynna sér úrræðið að lesa sér til um það á heimasíðu embættisins, www.ums.is en þar er jafnframt hægt að sækja um greiðsluaðlögun sem og önnur úrræði sem hafa verið nefnd hér að ofan. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins skrifar Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun