Þriggja ára stelpa kom móður og ófæddum bróður til bjargar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. desember 2015 13:27 Hetjan þriggja ára ásamt móður sinni og nýfæddum bróður.
Emma Bazzard, þriggja ára stelpa á Bretlandseyjum, á von á viðurkenningu fyrir hugrekki sem hún sýndi í nóvember með símtali í neyðarlínuna. Ólétt móðir hennar hafði fallið niður tröppur á heimili þeirra og misst meðvitund. Símtalið varði í ellefu mínútur þar sem hetjan þriggja ára ræddi við starfsmann neyðarlínunnar og útskýrði hvað gerst hafði. Gat hún gefið upp heimilisfang þeirra og nafn móður sinnar. Heilbrigðisstarfsmenn voru sendir á vettvang um leið og hafði stúlkan meira að segja tekið úr lás þegar þá bar að garði.Tókst að fresta fæðingu Móðir hennar, Catherine, hafði lent á maganum og talið var að hefja þyrfti fæðingu sem hefði verið sjö vikum fyrir settan fæðingardag. Með aðstoð lækna tókst að koma í veg fyrir fæðinguna. Í desember fæddist svo lítill prins á tilsettum tíma. Emma fær viðurkenningu fyrir hugrekki sitt síðar í mánuðinum þar og mun hún þá hitta fyrir sjúkraliðana sem komu móður hennar til bjargar og starfsmann neyðarlínunnar sem hún ræddi við í mínúturnar ellefu. „Ég man ekki mikið eftir því sem gerðist en það er alveg á hreinu að Emma var frábær, yfirveguð og klár,“ segir móðirin stolta.Að neðan má hlusta á brot úr símtalinu.
Mest lesið Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira