Ráðherrann vill ekki áfrýja í túlkamálinu Ólöf Skaftadóttir skrifar 9. júlí 2015 07:00 Illugi Gunnarsson
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hefur skilað umsögn til ríkislögmanns og tjáð honum að hann vilji ekki áfrýja dómi í máli Snædísar Ránar Hjartardóttur sem stefndi íslenska ríkinu fyrir að veita henni ekki þá túlkaþjónustu sem hún þarf. „Ég byggi mína afstöðu á því að það sé óumdeilt að þarna skorti reglur og hafi gert um árabil,” segir Illugi. Það er stjórnarskrárvarinn réttur almennings sem á við fötlun eða veikindi að stríða að ákveðin lágmarksþjónusta sé endurgjaldslaus. „Þessi lágmarksþjónusta hefur ekki verið skilgreind en það þarf að leggja aukið afl í að leiða slíkar reglur fram. Það þarf að forgangsraða þjónustunni,“ segir Illugi. Menntamálaráðuneytið lagði sex milljóna króna aukaframlag í túlkasjóð á ári, áður en dómurinn féll. Illugi segir upphæðina eiga að duga til þess túlkasjóður geti sinnt verkefnum sínum og byggir þá upphæð á mati Valgerðar Stefánsdóttur, forstöðumanns Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra. Héraðsdómur sagði ríkið hafa brotið gegn Snædísi þegar henni var gert að greiða fyrir túlkaþjónustu úr eigin vasa, alls um 50 þúsund krónur. Var ríkinu gert að endurgreiða henni og að auki 500 þúsund krónur í miskabætur. Það er ríkislögmaður sem ákveður hvort áfrýjað verði til Hæstaréttar, eftir umsagnir fjármála- og heilbrigðisráðuneyta.
Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fleiri fréttir Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Komi ekki á óvart skapi ríkið aftur skaðabótaskyldu gagnvart Hvali hf. Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Sjá meira