Mæta ekki á Samvest fyrst Óli Geir spilar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. janúar 2015 16:36 "Þegar unglingar í Strandabyggð eru annars vegar tökum við upplýstar og öruggar ákvarðanir eingöngu,“ segir tómstundafulltrúinn á Hólmavík.
Tómstundafulltrúi Strandabyggðar segir að unglingar á Hólmavík muni ekki mæta á Samvest, undankeppni Samfés í Bolungarvík á föstudaginn, ef fram fer sem horfir að plötusnúðurinn Óli Geir Jónsson spili þar. Þess í stað muni þau taka þátt í undankeppninni á Vesturlandi. Bæjarins besta greinir frá. Í morgun var greint frá því að Óli Geir hefði verið afbókaður á Samvest. Hann var ekki sáttur við þá ákvörðun og sagðist reglulega vera afbókaður vegna fortíðar sinnar. „Það sorglega við þetta er að þessir aðilar eiga að kenna krökkum að fyrirgefa, allir eiga skilið annan séns, batnandi mönnum er best að lifa og allir gera mistök, eins og ég gerði með eitthvað Dirty Night partý þegar þessir unglingar í dag voru í bleyju,“ sagði Óli Geir. Á fjórða tímanum sendi Benedikt Sigurðsson, rekstraraðili félagsheimilisins í Bolungarvík, frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að DJ Óli Geir myndi spila á Samvest eftir allt saman. „Og bíðum við mjög spennt, enda einn fremsti og þekktasti plötusnúður landsins. Það verður einnig að kenna börnunum að læra að fyrirgefa og að það er allt í lagi að skipta um skoðun, ef sannfæring manns segir manni það. Við getum ekki tekið manneskjur af lífi fyrir sögusagnir.“Hafa stuðning frá Samfés Esther Ösp Valdimarsdóttir, tómstundafulltrúi Strandabyggðar, segir í samtali við BB að ákvörðun hafi verið tekin um að sniðganga undankeppnina í Bolungarvík og keppa á Vesturlandi. „Ég tók þá ákvörðun, með stuðningi Ozon-ráðs (Félagsmiðstöðvarinnar á Hólmavík) og eftir að hafa ráðfært mig við fjölmarga fagaðila, foreldra og áhugasama, að við vildum ekki fara á ball með Óla Geir,“ segir Esther. Hún segist hafa stuðning Samféss og segi vel geta verið að Óli Geir sé á beinu brautinni og jafnvel talist góð fyrirmynd. „Hins vegar hefur hann staðið fyrir vafasömum skemmtunum þar sem gert er út á að karlmenn skemmti sér á kostnað kvenna eða stúlkna á óræðnum aldri. Í samhengi m.a. Dirty Night voru konur ítrekað lítillækkaðar á ósmekklegan hátt og hann, sem ekki var aðeins DJ heldur skipuleggjandi, skammaðist sín ekki fyrir það.“ Esther segir að eingöngu séu teknar upplýstar og öruggar ákvarðanir þegar unglingar í Strandabyggð séu annars vegar.
Tengdar fréttir Óli Geir mun spila á Samvest: „Getum ekki tekið manneskjur af lífi fyrir sögusagnir“ Ákvörðuninni um að meina Óla Geir að spila á grunnskólaballi í Bolungarvík snúið 8. janúar 2015 15:37 Óli Geir afbókaður á Samvest: „Í nánast hverjum mánuði er mér neitað að koma fram“ "Hvað er að vera fyrirmynd? Ég reyki ekki, ég dópa ekki. Ég stunda líkamsrækt, ég er einkaþjálfari, ég stunda íþróttir og hef gert alla mína ævi“ 8. janúar 2015 09:38 Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira
Óli Geir mun spila á Samvest: „Getum ekki tekið manneskjur af lífi fyrir sögusagnir“ Ákvörðuninni um að meina Óla Geir að spila á grunnskólaballi í Bolungarvík snúið 8. janúar 2015 15:37
Óli Geir afbókaður á Samvest: „Í nánast hverjum mánuði er mér neitað að koma fram“ "Hvað er að vera fyrirmynd? Ég reyki ekki, ég dópa ekki. Ég stunda líkamsrækt, ég er einkaþjálfari, ég stunda íþróttir og hef gert alla mína ævi“ 8. janúar 2015 09:38