Getum verið stoltir af spilamennskunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. janúar 2015 06:00 Aðstoðarmaður Dags huggar hann eftir leik. fréttablaðið/eva björk
Þýskaland spilar ekki um verðlaunasæti á HM í Katar en það varð ljóst eftir að lærisveinar Dags Sigurðssonar töpuðu fyrir heimamönnum, 26-24, í 8-liða úrslitum keppninnar í Lusail-höllinni í gær. Þjóðverjar voru ólíkir sjálfum sér miðað við frammistöðuna á mótinu til þessa. Þýskaland fékk þó tækifæri til að minnka muninn í eitt mark á lokamínútum leiksins en Daniel Saric, bosníski markvörðurinn í liði Katars, varði í tvígang frá Patrick Grötzki úr dauðafærum sem gerði út um vonir Þjóðverja. „Við byrjuðum ekki vel og ég hefði átt að skipta fyrr í 6-0 vörnina,“ sagði Dagur en þýska vörnin var í miklum vandræðum með línumanninn Borja Vidal framan af. „Eftir það vorum við miklu þéttari. En við vorum líka í vandræðum í sókn – báðar skytturnar byrjuðu illa og miðjumaðurinn var passívur.“ Niðurstaðan var auðvitað mikil vonbrigði en Dagur hrósaði engu að síður sínum mönnum. „Þetta er okkar fyrsta tap og við getum verið stoltir af spilamennsku okkar í dag [í gær]. Strákarnir börðust eins og ljón og nú þurfa þeir að rífa sig upp og koma sér í stand fyrir næsta leik.“ Þýskaland mætir Króatíu í fyrri leik sínum í umspilinu um 5.-8. sætið en liðin í 2.-7. sæti keppninnar fá þátttökurétt í undankeppni næstu Ólympíuleika.
HM 2015 í Katar Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira