Glöð að hafa álpast á hjólið 17. janúar 2015 12:00 Hjólar með hópi kvenna um borgina annan hvern laugardag og nýtur þess vel. Allar konur eru velkomnar með og má finna allar upplýsingar um Kríukonur á Facebook. Pjetur
Kolbrún Björnsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona, hefur fundið sig í hjólreiðaheiminum. Hún vinnur í hjólaverslun og skipuleggur hjólaferðir í frítímanum.Hvað ertu að gera þessa dagana? Ég er að vinna í Kríu, hjólaverslun, úti á Granda og hjóla. Og plana alls kyns skemmtilega hjólatengda hluti.Ertu hætt á fjölmiðlum? Já. Var þetta ekki bara komið gott?Eru hjólreiðar málið? Algjörlega. Ég get ekki lýst því hversu glöð ég er að hafa álpast á hjólið síðasta vor. Það hefur snúið við lífi mínu og það til hins betra.Hefur þú sett þér eitthvert markmið tengt hjólreiðunum? Já, fyrir utan það að ætla að hjóla fimm þúsund kílómetra á þessu ári og taka þátt í fleiri keppnum en í fyrra þá er það mitt hjartans mál að styðja við þá sem eru nýir í greininni, ekki síst konur.Hver er óskamorgunmaturinn um helgar? Óskamorgunmaturinn alla daga er pönnukökur, egg og beikon.Hver er yfirleitt helgarmorgunmaturinn? Óskamorgunmaturinn. Allavega oft á sunnudögum.Þegar þú ferð út að skemmta þér hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Ég kalla það að hjóla að fara út að leika þannig að það er í raun skemmtunin mín. En það fer mjög lítið fyrir hefðbundnu skemmtanalífi hjá mér nema þá að hitta vinkonur mínar. Sem mér þykir reyndar óhemju skemmtilegt.Sefur þú út um helgar? Já. Til níu, jafnvel tíu. En varla mikið lengur en það.Vakir þú frameftir? Ég vaki að minnsta kosti lengur en unglingarnir á heimilinu. Eða ég reyni það. Ef þú ert næturhrafn færðu þér eitthvað í gogginn á kvöldin? Yfirleitt ekki. Jú, mögulega saltstangir eða popp.Ertu með nammidag? Hvaða nammi færðu þér? Það eru allir dagar nammidagar. Eða enginn þannig séð. Ég borða mjög lítið sælgæti nema þegar ég dett í Nóa karamellusprengjur sem eru hættulega góðar. Þá skiptir dagurinn engu. Og nú langar mig í svoleiðis.Hvað verður í sunnudagskaffinu? Mögulega kaka sem ég baka. Ég ákvað fyrir einhverjum vikum að æfa mig að baka í janúar og gerði um síðustu helgi eina afskaplega fallega og sem betur fer líka bragðgóða. Mögulega reyni ég að toppa hana. Eða geri bara Sylvíuköku sem er vandræðalega góð miðað við hversu einfalt er að baka hana.Stendur eitthvað sérstakt til um þessa helgi? Já, ég ætla að hjóla hring um Reykjavík á laugardaginn með líklegast hátt í fjörutíu konum. Ég kalla þetta Kría Wmn Ride sem gengur út á það að konur hittast klukkan ellefu í Kríu og hjóla saman hring um borgina og enda á kaffihúsi í spjalli og með því. Engin er skilin eftir og því öllum óhætt að mæta. Þetta geri ég annan hvern laugardag og nýt þess í botn.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Fleiri fréttir Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum Sjá meira