Hafnar því að flokkurinn sé klofinn Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. september 2015 07:00 Jeremy Corbyn í ræðustól á flokksþingi Verkamannaflokksins í gær. VÍSIR/EPA
Jeremy Corbyn boðar mildari stjórnmál þar sem byggt verði á gildismati almennings í Bretlandi. Þetta sagði hann á flokksþingi breska Verkamannaflokksins í gær í fyrstu ræðu sinni þar eftir að hafa verið kosinn leiðtogi flokksins. Hann sagði ekkert hæft í því að stefna hans væri að kljúfa flokkinn í tvennt, enda ætli hann sér ekki að móta stefnu flokksins í einrúmi. „Ég vil opnar samræður. Ég mun hlusta á alla. Ég er sannfærður um að forysta felist í því að hlusta,“ sagði Corbyn. Hins vegar hafi leiðtogakjörið veitt honum ótvírætt umboð til þess að gera breytingar, bæði innan flokksins og í samfélaginu: „Það var kosið um breytingar á því hvernig við stundum stjórnmál, bæði í Verkamannaflokknum og í landinu.“ Stjórnmálin eigi að verða „mildari, og ná til fleiri“. Hann uppskar hvað eftir annað mikið lófatak úr salnum, en sjá mátti stöku flokksfélaga sitja með krosslagðar hendur meðan flestir stóðu upp til að klappa. Tony Blair, fyrrverandi leiðtogi flokksins, hefur sagt að Corbyn muni fara með flokkinn fram af hengiflugi. Aðrir forystumenn hafa lýst efasemdum og gagnrýnt stefnu Corbyns. Breskir fjölmiðlar tóku eftir því að hann nefndi ekki fjárlagahallann í ræðu sinni. Aðrir bentu á að jakkafötin hans þyki harla lík jakkafötum gamanfígúrunnar Mr. Bean. Í skoðanakönnun, sem sjónvarpsstöðin Sky birti stuttu eftir að Corbyn flutti ræðuna, kemur fram að 53 prósent aðspurðra segjast vel geta séð hann fyrir sér sem forsætisráðherra landsins. Þá sögðust 66 prósent telja að hann muni standa sig vel sem leiðtogi Verkalýðsflokksins. Þá voru viðbrögð þeirra forystumanna flokksins, sem fjölmiðlar ræddu við að lokinni ræðunni, harla jákvæð. „Jeremy var algerlega samkvæmur sjálfum sér og þetta var í raun boðskapur vonar um þau mannúðlegu stjórnmál sem hann vill sjá og það samfélag umhyggju sem hann vill byggja upp,“ var til dæmis haft eftir Heidi Alexander, sem er skuggaráðherra Verkalýðsflokksins í heilbrigðismálum.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Fleiri fréttir Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Sjá meira