Spyrja EFTA um innflutning á hráu kjöti fanney birna jónsdóttir skrifar 25. febrúar 2015 10:00 Ferskar lambalundir. Fyrirtækið Ferskar kjötvörur ehf. telur það brjóta gegn EES-samningnum að synja því um að flytja inn ferskt nautakjöt. Fréttablaðið/Stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur heimilaði í gær að leitað yrði álits EFTA-dómstólsins um hvort hömlur á innflutningi á fersku, hráu nautakjöti séu í andstöðu við EES-samninginn. Fyrirtækið Ferskar kjötvörur ehf. höfðaði skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna tjóns sem fyrirtækið telur sig hafa orðið fyrir þegar því var synjað um leyfi til innflutnings á 83 kílóum af hollenskum nautalundum í febrúar 2014. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimilaði innflutninginn að því tilskildu að kjötinu fylgdu staðfestingar og vottorð um til dæmis að vörurnar hefðu verið geymdar í minnst -18°C í einn mánuð fyrir tollafgreiðslu. Þar sem kjötið var ófryst var eðli málsins samkvæmt ógerlegt að skila inn vottorði um að kjötið hefði verið fryst. Matvælastofnun hafnaði því að heimila innflutninginn af þessari ástæðu og þar með neitaði tollstjóri að tollafgreiða kjötið, sem í kjölfarið skemmdist.Arnar Þór StefánssonArnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmaður, sem flytur málið fyrir hönd Ferskra kjötvara, segir að sambærilegar spurningar hafi ekki áður verið lagðar fyrir EFTA-dómstólinn um innflutning á kjöti. „Það er hagsmunamál fyrir neytendur í landinu að fá að neyta fersks kjöts sem er flutt inn ferskt en ekki frosið.,“ segir Arnar Þór. Meðal þeirra spurninga sem lagðar verða fyrir EFTA-dómstólinn í málinu eru hvort hömlur á fersku hráu, kjöti svo sem þær sem fram koma í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim séu í andstöðu við tilskipun EES um dýraheilbrigðiseftirlit í viðskiptum innan bandalagsins. Sérstaklega er óskað eftir leiðbeiningum um hvenær hömlur við innflutningi hrás kjöts geti réttlæst af sjónarmiðum um verndun lífs og heilsu manna og dýra. Þá er óskað eftir áliti á hvort það brjóti í bága við samninginn að krefjast þess að innflytjandi hrás kjöts sæki um leyfi til ráðherra áður en hann flytur inn vöru sína og leggi fram, til umsagnar Matvælastofnunar, aðflutningsskýrslu, upplýsingar um uppruna- og framleiðsluland vörunnar, tegund vöru og framleiðanda auk tilskilinna vottorða.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira