Hið íslenska biblíufélag 200 ára Fríður Birna Stefánsdóttir skrifar 4. mars 2015 07:00 „Örsmá er býflugan meðal fleygra vera en afurð hennar er sætari öllu lostæti. Hreyk þér ekki upp þótt þú berir glæst klæði og ofmetnast ekki þótt þú njótir sæmdar. Því að Drottinn gerir dásemdarverk og það sem hann aðhefst er mönnum hulið. Margur harðstjórinn hefur úr hásæti fallið og sá hlaut kórónu sem síst varði. Margur valdhafinn þoldi mestu smán og rómaðir menn lentu á valdi annarra“ (Síraksbók 11:3-6) Biblían er bók bókanna, það er engin spurning. Ég tala oft um hana sem „Orginalinn“. Ástæðan er sú að ég hef markvisst sótt mikið af uppbyggilegum námskeiðum í m.a. stjórnun, sjálfstyrkingu og hópefli reglulega frá því ég fór á vinnumarkaðinn innan við tvítugt. Það leið varla það ár sem ég fann ekki eitthvert námskeið til að sækja. Ótal margt lærði ég sem gerði mig betri í vinnu og bætti mitt persónulega líf. Fyrir um tíu árum fór ég svo á Alfa-námskeið sem breytti öllu mínu lífi. Á námskeiðinu kynntist ég lifandi trú, sem fram að því hafði fallið undir falleg ævintýr í mínum huga. Samhliða fór ég að lesa Biblíuna og uppgötvaði hið ótrúlega. Í Biblíunni, bók bókanna, fann ég nánast, ef ekki, allt sem ég var búin að læra á hinum námskeiðunum og hafði skipt máli. Ég tel mig því vera komna með frumritið, „Orginalinn“. Ég þarf því bara eina bók í dag, les oft í henni og finnst hún ennþá einstök, eftir þessi tíu ár. Hér koma vers úr 1. Korintubréfi 13. kafla sem ég les oft vegna þess að þau minna mig á að vera alltaf góð við fólk: „Þótt ég talaði tungum manna og engla en hefði ekki kærleika væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt. Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur en hefði ekki kærleika, væri ég engu bættari.“ Hið íslenska biblíufélag er 200 ára í ár. Ég óska félaginu til hamingju með 200 árin. Megi Guð blessa áframhaldandi starf félagsins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Hér er elíta, um elítu, frá elítu, til elítu Ragnar Kjartansson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Að fortíð skal hyggja Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ef Landsvirkjun verður ekki seld vitum við hvers vegna Ögmundur Jónasson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Vitundarvakning um auðlindir þjóðar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Vofa húsagans býsnast enn Haukur Már Helgason skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um Ísland, Katrínu og Gaza Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason skrifar Skoðun Katrín og kvenhatrið Ólafur Sveinsson skrifar Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson skrifar Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína skrifar Skoðun Inngönguspáin Eygló Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar