Dádýr hefndi sín á 72 ára veiðimanni Kjartan Atli Kjartansson skrifar 6. janúar 2015 15:13 Myndin er úr safni. Vísir/Getty
Kvenkyns dádýr hefndi sín á 72 ára veiðimanni og réðst á hann eftir að veiðimaðurinn skaut dádýrið með örvum, en hann var vopnaður lásboga. Atvikið átti sér stað í Wisconsin í Bandaríkjunum. Veiðimaðurinn skaut dádýrið á föstudeginum og ætlaði að vitja veiðifengsins á föstudagskvöldið síðastliðið. Þá beið dýrið eftir honum og réðst á hann. Maðurinn var færður á spítala, eftir að dýrið sparkaði í höfuð hans, en ekki er vitað um afdrif mannsins að svo stöddu. Dýið slapp úr átökunum. Það er mjög óalgengt að dádýr ráðist á mannfólk, en þau geta verið grimm á mökunartímabilum, þá sér í lagi karldýrin. Nokkur þekkt atvik af árásum dádýra á menn voru tekin saman í umfjöllun Washington Post. Þar voru rifjuð upp atvik í Kaliforníu-fylki árið 2005, þegar nokkur dádýr réðust á gæludýr og fólk. Talið var að árásirnar væru tilkomnar vegna þess að dýrin væru orðin aðþrengd í sínum híbýlum og að stofninn væri orðinn of stór fyrir landsvæðið sem dýrin bjuggu á. Í suðurhluta Illinois-fylkis varð það þekkt að kvenkyns dádýr réðust á fólk til þess að vernda afkvæmi sín. Árið 2006 ákvað nemandi eins skóla að fara í mál við skólayfirvöld vegna þess að dádýr réðst á hann þar, hann taldi skólann ekki hafa gert nægilega mikið til þess að koma í veg fyrir árásina. Líklega er þó þekktasta árás dádýr veiðimanns sú sem átti sér stað árið 2008, þegar karlkyns dýr réðst á Lynn Chestnut, veiðimann. Sá ætlaði sér að búa til flott veiðimyndband og spreyjaði þvagi úr kvenkyns dádýri til þess að laða karldýrin að sér. Það fór ekki vel; eitt karldýrið réðst hreinlega á hann. Chestnut viðurkenndi í samtali við Animal Planet að það ætti ekki að spreyja kvenkyns þvagi á sig og sagðist hafa reitt karldýrin til reiði með því. Atvikið má sjá hér að neðan.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Sjá meira