Vertinn á Litlu kaffistofunni fjúkandi illur út í veðurfræðinga ingvar haraldsson skrifar 6. janúar 2015 18:26
Stefán Þormar Guðmundsson, vertinn á Litlu kaffistofunnar, er ósáttur við að veðurfræðingar séu að segja fólki hvort fært sé yfir Hellisheiðina eða ekki. „Nei, stundum er ég ekki kátur með þá,“sagði Stefán í þættinum Í bítið á Bylgjunni. „Þeir eru að lýsa veðrinu og segja frá því og það er þeirra starf. En það er orðin svolítil forræðishyggja þegar þeir eru að segja hvenær eigi að ferðast og hvenær eigi ekki að ferðast. Vegagerðin sér um það og það eru bílar hér að hreinsa veginn á vegum Ingileifs Jónssonar og þetta er allt gert vel og svo lokar Vegagerðin. Þá koma þeir að kvöldi til og segja að það hvort eigi að ferðast eða ekki að ferðast, myndalegar ungar konur og myndalegir ungir menn.“ Stefán segir veðurfræðinga allt of oft skipta sér af því hvort fólk eigi að vera á ferðinni. Honum finnst að fólk eigi sjálf að ráða því hvort það fari af stað eða ekki. „Þeir eiga bara sleppa því orði að það sé ekkert ferðaveður, ég vil bara að hver og einn meti það hvenær hann fari úr bæ og hvenær hann komi í bæ,“ segir Stefán. „Með því að veðurfræðingar séu að segja svona eru þeir að gera hálfa þjóðina að einnota guðsgeldingum í ferðalögum, þeir bara hreyfa sig ekki.“Vertinn er einnig ósáttur við að Veðurstofan vari við veðrum sem svo láti ekki sjá sig. „Sem dæmi þá síðasta sunnudag var búið að segja frá því að það yrði leiðindaveður sem kom ekki. Það var leiðinlegt veður en það var ferðaveður,“ segir Stefán. „Ég er alinn upp í Skaftafellssýslu og þar fóru mjólkurbílar og bílar til Reykjavíkur og alltaf komu þeir til baka en þeir voru lengur á leiðinni en núna enda ekki hreinsað eins vel.“ Aðspurður hvort veðurfræðingar séu ekki að reyna að koma í veg fyrir að vanbúnir bílar fari út í umferðina viðurkennir hann að svo sé. „Auðvitað eru þeir að því en þá eru hinir að gjalda þess sem kunna þetta og geta. Auðvitað eru of margir vanbúnir bílar á götunum sem stoppa oft umferðina.“ En engu síður segist Stefán alltaf hafa komist í vinnuna þau 23 ár sem hann hefur rekið Litlu kaffistofuna óháð veðri og vindum. „ Ég kemst með því að stoppa þegar ég sé ekki en sumir keyra þó þeir sjái ekki neitt og þeir eru alltaf út af veginum eða aftan á næsta bíl en þá er ekki við veðurfræðingana að sakast.“
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Sjá meira