99 ára plankari á Eyrarbakka Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 6. apríl 2015 19:41
Sigurður Bjarnason, 99 ára heimilismaður á dvalarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka, hefur vakið mikla athygli fyrir fimi sína því hann gerir sér stundum lítið fyrir og leggst á gólfið og plankar fyrir sig og heimilisfólkið. Á Sólvöllum eru átján heimilismenn - tólf konur og sex karlar. Sigurður er frá Hlemmiskeiði á Skeiðum og verður hundrað ára 1. janúar 2016. Hann er nýfluttur á Sólvelli. Auk þess sem Sigurður sker út klukkur af mikilli snilld þá er hann strax farinn að láta til sín taka í leikfimistímum heimilisfólksins því hann gerir sér lítið fyrir og leggst á gólfið og plankar í fimmtán til tuttugu sekúndur, stundum tvisvar í röð. Sigurður fer létt með þetta þrátt fyrir háan aldur en hann byrjaði fyrst að planka í síðustu viku. „Það var íþróttatími hjá konunum hérna þar sem þær sátu á stól og svo kom íþróttakennarinn. Hún sýndi okkur ýmislegt, hún gerði meðal annars þessa æfingu og þá sagði konan við hliðina á mér: „Ég bara mana þig á að gera þetta“, segir hún. Nú ég tók áskoruninni að því að ég taldi að ég gæti þetta,“ segir Sigurður sem gerði æfinguna tvisvar sinnum þar sem taka þurfti mynd af honum í seinna skiptið. Það er ótrúlegt hvað Sigurður heldur miklum kröftum og er hraustur þrátt fyrir að hann sé að verða eitt hundrað ára. „Já, ég kannski veit ekki á hvað á að kalla hraustur, jú, jú, ég má vera alveg ánægður,“ segir Sigurður.Kveðast á í sólstofunni Heimilisfólkinu á Sólvöllum líður greinilega mjög vel þar og margir hittast nokkrum sinnum á dag í sólstofunni og kveðast á. Laufey Guðmundsdóttir, 95 ára frá Egilsstaðakoti í Flóa, er ein þeirra, en í fréttinni má heyra hvernig hún fer með upphafið að hjónabrag sem hún lærði sem lítil stelpa.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira