„Allir ættu að vera meðvitaðir um hvað verðtrygging felur í sér“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 5. janúar 2015 14:25 Aðalmeðferð fór fram í málinu í dag. Vísir/GVA „
Allur almenningur er upplýstur um verðtryggingu og hvað hún felur í sér,“ sagði Áslaug Árnadóttir, lögmaður Íslandsbanka í máli sem Gunnar V. Engilbertsson, viðskiptavinur bankans, höfðaði gegn bankanum vegna fjögurra milljóna króna verðtryggðs fasteignaveðláns sem hann tók árið 2007.Einar Páll, til vinstri, sagði fyrir dómnum að verðtryggingin væri flókin.Vísir/GVASegir lánaskjölin ófullnægjandi Lögmaður Gunnars, Einar Páll Tamimi, sagði að Gunnar hefði ekki verið upplýstur um hvernig lánið gæti þróast á lánstímanum vegna verðtryggingarinnar. Í munnlegum málflutningum, sem fram fór í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, sagði Einar Páll að í lánaskjölunum væri ekki vísað til hvaða vísitölu verið væri að binda lánið við, ekki upplýst hvernig sú vísitala væri reiknuð og svo að minnst eitt prósent ofmat væri á verðhækkunum á hverju ári samkvæmt vísitölunni. Einar Páll sagði að bankinn ætti að hafa gert lántakandanum grein fyrir um hvaða vísitölu væri að ræða, hvernig hún væri samansett, og hver þróunin hefði verið á henni á einhverju tilteknu tímabili. Tók hann sem dæmi að bílaleigur væru með ítarlegri útskýringar á lögum og skilmálum um bíla sína en bankinn um verðtryggð lán sín. Leitað var til EFTA-dómstólsins um ráðgefandi álit í málinu og var álit dómsins birt í lok ágúst. Þar kom fram að að tilskipun Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningum leggi ekki almennt bann við skilmálum um verðtryggingu veðlána í samningum milli veitenda og neytenda. EFTA dómstóllinn sagði það vera íslenskra dómstóla að taka afstöðu til þess hvort lánasamningurinn sé sanngjarn. Tekist er á um það fyrir héraðsdómi.Gunnar, til hægri, sagðist hafa tekið áhættuminni valkostinn þegar hann tók verðtryggt lán í stað gengistryggðs.Vísir/GVATók áhættuminni valkostinn Gunnar var sjálfur kallaður fyrir dóminn til að gefa skýrslu en auk hans kom Heiðrún E. Guðmundsdóttir, deildarstjóri vísitöludeildar Hagstofu Íslands, fyrir dóminn þar sem hún svaraði spurningum um vísitölu neysluverðs. Gunnar, sem er menntaður viðskiptafræðingur, starfaði á lánasviði Glitnis um tíma en hann vann í bankakerfinu frá árinu 1998 þar til hann hóf störf sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi, meðal annars fyrir slitastjórnir föllnu bankanna. Aðspurður um ástæður þess að hann tók verðtryggt lán sagðist hann hafa talið það vera áhættuminna. „Það var á þeim tíma, þá voru ekki mörg lán í boði. Annaðhvort erlend lán eða þessi svokölluðu verðtryggðu lán sem bankarnir voru farnir að bjóða. Mér fannst bara áhættuminna að taka verðtryggt lán,“ sagði hann og bætti við: „Það var búið að vera langt tímabil með lágri verðbólgu og góður stöðugleiki. Það virtist vera það augljósa til að gera.“ Gunnar segist ekki hafa séð hækkunina á láninu sínu fyrir. „Nei ,ég sá það allavega ekki fyrir. Ég var ekki með þá spádómseiginleika. Þegar ég tek lánið var búið að vera mjög langt stöðugleikatímabil varðandi verðbólgu,“ sagði hann. Gunnar sagðist ekki hafa átt von á 20 prósent verðbólgu á sama tíma og laun væru að lækka, líkt og gerðist í hruninu. Þá sagðist Gunnar ekki hafa spáð í hvernig vísitalan væri fundin út. „Þetta var bara vísitala sem var birt af hagstofunni og henni var bara „pluggað“ beint í þetta skuldabréf og þetta reiknað af sjálfvirku kerfi bankans,“ sagði hann.Áslaug, til vinstri, sagði að öllum mætti vera ljóst hvernig verðtryggingin virkaði. Talað væri um verðtryggt samfélag á Íslandi.Vísir/GVAÖllum skilyrðum uppfylltÁslaug, lögmaður Íslandsbanka, sagði að öllum lagalegum skilyrðum væri uppfyllt í lánasamningnum og fylgiskjölum. Blés hún á að verðtryggingin væri fyrirbæri sem íslenskir neytendur skildu ekki. „Hvað er verðtryggingin? Sóknaraðili hefur gert mikið úr því að verðtrygging sé flókið fyrirbæri og illskiljanlegt,“ sagði hún og bætti við: „Verðtrygging er engin geimvísindi.“ Sagði Áslaug að verðtryggingin hefði verið hluti af daglegu lífi Íslendinga í áratugi og að jafnvel væri talað um að íslenskt samfélag væri verðtryggt. „Allir ættu að vera meðvitaðir um hvað verðtrygging felur í sér,“ sagði hún og bætti við að henni þætti Einar Páll gera lítið úr gáfum og skilningi almennings með því að efast um að fólk skilji verðtrygginguna. „Allur almenningur er upplýstur um verðtryggingu og hvað hún felur í sér.“ Áslaug taldi líka fráleitt að ef verðtryggðu ákvæðin yrðu dæmd ógild gæti lánasamningurinn ekki staðið með þeim ákvæðum sem á eftir væru. „Ef að lánið hefði ekki verið verðtryggt hefði það líklega borið breytilega, umtalsvert hærri vexti en lánið gerði,“ sagði hún. Einn dómaranna spurði hana þá hvort að eitthvað annað hefði verið í boði fyrir lántakendur og svaraði hún: „Slík lán voru í boði en ekki auglýst og fylgdu óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans. Þeir vextir fóru upp í 27 prósent á tímabili.“ Lögmaðurinn hafnaði því líka einnig að verðtrygging væri einhliða breyting á verði. Sagði hún að verðtrygging með vísitölu neysluverðs væri það sem lántakandi og lánveitandi kæmu sér saman um að miða við, útreikningur vísitölunnar væri framkvæmd af óháðum aðila og að um væri að ræða viðurkenndan mælikvarða. Þá sagði hún að ekki væri hægt að bera fyrir sig vanþekkingu á lögum um verðtryggingu. Búist er við að dómur verði kveðinn upp í málinu innan fjögurra vikna.Uppfært klukkan 15.42. Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar sagði að Heiðrún Guðmundsdóttir hefði svarað spurningum um verðtrygginguna. Það er ekki rétt heldur svaraði hún spurningum um vísitölu neysluverðs.
Tengdar fréttir Kjarninn sá að íslenskir dómstólar eigi síðasta orðið Verðtryggingin brýtur ekki gegn tilskipun Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningum og það er íslenskra dómstóla að meta hvort skilmáli um verðtrygginguna sé óréttmætur. 28. ágúst 2014 18:30 Telur líklegt að verðtryggingin haldi hjá íslenskum dómstólum Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, telur líklegt að verðtrygging neytendalána haldi þegar málið fer fyrir íslenska dómstóla. Hann segir mikilvægt að búið sé að eyða þeirri óvissu sem var uppi vegna ákvörðunar EFTA-dómstólsins. 28. ágúst 2014 12:58 Segja að spurningunni um ólögmæti verðtryggingarinnar sé enn ósvarað Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent frá sér yfirlýsingu eftir að EFTA dómstóllinn úrskurðaði um að íslenskir dómstólar skuli skera úr um lögmæti verðtryggingarinnar. 28. ágúst 2014 19:14 Menn önduðu léttar í Seðlabankanum Óvissu um lögmæti verðtryggingar hefur að miklu leyti verið eytt með dómi EFTA-dómstólsins og niðurstaðan er jákvæð fyrir fjármálastöðugleika í landinu, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. 28. ágúst 2014 18:30 Málið mikilvægt fyrir fjármál ríkisins og stöðugleika Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir ekki ástæðu fyrir ríkið að fagna sérstaklega. 28. ágúst 2014 11:39 Verðtryggingin heldur Íslandsbanki vann fullnaðarsigur í máli gegn Gunnari V. Engilbertssyni fyrir EFTA dómstólnum. 28. ágúst 2014 09:30 „Ekkert í þessu sem kemur sérstaklega á óvart“ Lögmaður Íslandsbanka segir niðurstöðu EFTA dómstólsins ekki klára málið. 28. ágúst 2014 10:00 Mest lesið Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira
Kjarninn sá að íslenskir dómstólar eigi síðasta orðið Verðtryggingin brýtur ekki gegn tilskipun Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningum og það er íslenskra dómstóla að meta hvort skilmáli um verðtrygginguna sé óréttmætur. 28. ágúst 2014 18:30
Telur líklegt að verðtryggingin haldi hjá íslenskum dómstólum Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, telur líklegt að verðtrygging neytendalána haldi þegar málið fer fyrir íslenska dómstóla. Hann segir mikilvægt að búið sé að eyða þeirri óvissu sem var uppi vegna ákvörðunar EFTA-dómstólsins. 28. ágúst 2014 12:58
Segja að spurningunni um ólögmæti verðtryggingarinnar sé enn ósvarað Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent frá sér yfirlýsingu eftir að EFTA dómstóllinn úrskurðaði um að íslenskir dómstólar skuli skera úr um lögmæti verðtryggingarinnar. 28. ágúst 2014 19:14
Menn önduðu léttar í Seðlabankanum Óvissu um lögmæti verðtryggingar hefur að miklu leyti verið eytt með dómi EFTA-dómstólsins og niðurstaðan er jákvæð fyrir fjármálastöðugleika í landinu, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. 28. ágúst 2014 18:30
Málið mikilvægt fyrir fjármál ríkisins og stöðugleika Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir ekki ástæðu fyrir ríkið að fagna sérstaklega. 28. ágúst 2014 11:39
Verðtryggingin heldur Íslandsbanki vann fullnaðarsigur í máli gegn Gunnari V. Engilbertssyni fyrir EFTA dómstólnum. 28. ágúst 2014 09:30
„Ekkert í þessu sem kemur sérstaklega á óvart“ Lögmaður Íslandsbanka segir niðurstöðu EFTA dómstólsins ekki klára málið. 28. ágúst 2014 10:00