Hefur helgað sig hugðarefni sínu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 13. janúar 2015 09:15 Kristín er menntaður íþrótta- og grunnskólakennari. Vísir/Vilhelm „
Það er algjörlega mitt hugðarefni að öll börn fái tækifæri til þess að læra í gegnum hreyfingu á faglegan og skemmtilegan hátt,“ segir Kristín Einarsdóttir, höfundur kennsluaðferðarinnar Leikur að læra. „Ég er búin að vera að þróa þetta í sjö ár og á síðasta ári hætti ég að kenna og er nánast bara í þessu,“ segir Kristín, sem hefur mikla trú á verkefninu. „Rannsóknir á heilastarfsemi barna styðja við námsefnið. Öll börn elska hreyfingu og þetta hentar sérstaklega vel fyrir börn með greiningar á ofvirkni og athyglisbresti.“ Leikur að læra er kennsluaðferð þar sem börnum á aldrinum tveggja til tíu ára eru kennd öll bókleg fög í gegnum leiki og hreyfingu. Kristín er menntaður íþrótta- og grunnskólakennari en hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar hún kenndi á yngsta stigi. Hún segir námsefninu hafa verið vel tekið. „Síðastliðin tvö ár hafa yfir þúsund kennarar komið á námskeið og foreldrar eru mjög áægðir með þetta. Núna er ég líka komin með foreldranámskeið, sýni foreldrum hvernig er hægt að kenna börnunum heima án þess að vera sitjandi við borð,“ segir Kristín en næst á dagskránni er að halda til Noregs og kynna Leik að læra þar. Nánari upplýsingar um kennsluaðferðina er hægt að nálgast á Leikuradlaera.is.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Sjá meira