Níu létust í átökum mótorhjólagengja Samúel Karl Ólason skrifar 17. maí 2015 22:28 Frá veitingastaðnum í Twin Peaks. Vísir/AP
Níu létu lífið þegar meðlimir þriggja mótorhjólagengja hófu skothríð á veitingarhúsi í Waco í Texas í kvöld, um hádegi að staðartíma. Minnst átján eru særðir. Samkvæmt lögreglunni hófust átökin með slagsmálum, en fljótlega voru dregnir upp hnífar, keðjur og byssur. Allir þeir sem létust eru úr mótorhjólagengjunum. „Á 34 ára ferli mínum er þetta ofbeldisfyllsti vettvangur glæps sem ég hef séð,“ sagði Patrick Swanton, talsmaður lögreglunnar, við blaðamenn. „Það er blóð allsstaðar.“ Lögreglan vissi af því að meðlimir gengjanna væru að safnast saman í veitingahúsinu og við það og voru lögregluþjónar viðstaddir þegar skothríðin hófst. Í fyrstu byrjaði skothríðin inn á veitingahúsinu og barst hún út á götu. Þar tóku lögregluþjónar þátt í átökunum og felldu þeir einhverja af þeim sem tóku þátt í átökunum. Samkvæmt AP fréttaveitunni létust átta á staðnum og einn seinna á sjúkrahúsi. Swanton sagði að eigendur veitingastaðarins hafi sagst vilja hafa gengin inni og því gátu lögregluþjónarnir ekki gripið inn í fyrr en skothríðin hófst. Á vef héraðsmiðilsins Waco Tribune Herald segir að aðrir meðlimir gengjanna streymi nú til bæjarins og hefur lögreglan flutt vitni í felur. Þá hefur viðbúnaður lögreglunnar verið aukinn. Þar að auki hefur forsvarsmönnum verslana í miðbæ Waco verið skipað að loka snemma. Meðal gengjanna þriggja eru Banditos og Cossaks.Fréttin var uppfærð 23:10.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira