Tekur þátt í alþjóðlegri búningakeppni í Svíþjóð Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 2. febrúar 2015 09:00 Aino klædd í sigurbúninginn. Vísir/Vilhelm
Japanshátíð Háskóla Íslands var haldin í ellefta sinn á Háskólatorgi síðastliðinn laugardag. Hátíðin er skipulögð af nemendum japönskudeildar Háskóla Íslands og undirbúningur er í höndum nemenda en þeir njóta jafnframt stuðnings frá japanska sendiráðinu og Japönum búsettum á Íslandi. Hluti hátíðarinnar er svokölluð Cosplay-búningakeppni sem haldin var í þriðja sinn á þessu ári. Cosplay-keppnin hefur farið stigvaxandi og í ár er hún komin á alþjóðlegan keppnisstaðal og fyrstu verðlaun voru ferð á alþjóðlegu Cosplay-keppnina The Nordic Cosplay Championship sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar. Aino Karinen sigraði keppnina á laugardaginn og heldur því út til Svíþjóðar í sumar og keppir fyrir Íslands hönd. Aino er að vonum spennt að fara út að keppa og hefur mestar áhyggjur af því að það verði of heitt. „Ég var í Svíþjóð sumar og þá var þrjátíu og fimm stiga hiti, það er mjög erfitt að vera í búningum þegar það er svona heitt,“ segir hún en síðastliðið sumar var hún viðstödd keppnina þar sem kærasti hennar tók þátt. „Það var fólk þar sem var í brynju og ég bara veit ekki hvernig þau fóru að því. Fólk er mjög ákveðið,“ segir hún og hlær. „Þetta er í annað skipti sem ég tek þátt í Cosplay-keppni. Það eru tvö ár síðan ég tók þátt í fyrsta sinn en þá vann ég ekki,“ segir Aino og hlær. Áhugi hennar á Cosplay kviknaði fyrir rúmum átta árum þegar hún aðstoðaði vinkonu sína við að sauma búning fyrir Cosplay-keppni sem hún var að fara að taka þátt í, en mikil áhersla er lögð á að sauma og búa til eigin búning og er eitt af þátttökuskilyrðum The Nordic Cosplay Championship að keppendur saumi og búi til alla hluta búninga sinna sjálfir og án aðstoðar. Um þrjá mánuði tók að fullklára búninginn sem samanstendur af kjól og stóru útsaumuðu höfuðfati en Aino var klædd sem karakterinn Talas úr manga-sögunni A bride‘s story sem teiknuð er af Kaoru Mori. „Það tók tvo mánuði að sauma hann og einn mánuð að sauma perlurnar í hattinn.“ Þrátt fyrir góðan árangur á laugardaginn er Aino ekki búin að ákveða hvort hún hyggi á að taka þátt í fleiri keppnum. „Ég er ekki alveg viss, við sjáum fyrst hvernig þetta fer í Svíþjóð,“ segir hún og hlær.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira