Mögulega stokkað upp í ríkisstjórn á gamlársdag Heimir Már Pétursson skrifar 30. desember 2015 20:40
Ekki er útilokað að breytingar verði á ráðherraskipan í ríkisstjórninni á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á gamlársdag. Oddvitar beggja stjórnarflokka hafa gefið í skyn að stokkað verði upp í ríkisstjórninni um áramótin. Níu ráðherrar sátu í fyrsta ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að honum meðtöldum sem tók við völdum á Bessastöðum hinn 23. maí árið 2013, sex karlar og þrjár konur. Umdeilt var í upphafi að ekki skyldi skipaður sérstakur umhverfisráðherra og að ráðneytið skyldi vera í höndum Sigurðar Inga Jóhannssonar vegna þess að hann væri einnig sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Fyrsta breytingin sem gerð var á ríkisstjórninni var þó ekki tengd þessari stöðu, heldur hrökklaðist Hanna Birna Kristjánsdóttir úr ríkisstjórn eftir margra mánaða vandræðaganga vegna lekamálsins svo kallaða hinn 4. desember á síðasta ári. Hún hafði þá aðeins setið í ráðherrastóli í 19 mánuði og tók Ólöf Nordal sæti hennar í innanríkisráðuneytinu hinn 4. desember 2014. Á ríkisráðsfundi á gamlársdag það ár bættist ríkisstjórninni síðan liðsauki þegar Sigrún Magnúsdóttir tók við umhverfismálunum úr höndum Sigurðar Inga. Bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafa gefið því undir fótinn að breytingar gætu orðið á ríkisstjórninni á hefðbundnum fundi í ríkisráði á Bessastöðum næst komandi fimmtudag. Jafnvel að flokkarnir skiptist á einhverjum ráðuneytum. Þá eru 15 mánuðir eftir af kjörtímabilinu. Ef einhver yfirgefur ríkisstjórnina hefur Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra verið talinn líklegastur. Forystumenn stjórnarflokkanna eru hins vegar þöglir sem gröfin hvað þetta varðar. Hver niðurstaðan verður kemur í ljós innan sólarhrings.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira