Þúsundir pílagríma í Betlehem Heimir Már Pétursson skrifar 24. desember 2015 13:00
Þúsundir kristinna pílagríma verða í Betlehem, fæðingarbæ Jesú Krists, yfir jólin. Palestínskum stjórnvöldum er mikið í mun að efla ferðamennsku á svæðinu og því er allt gert til að tryggja öryggi í borginni yfir hátíðarnar. Um 25 þúsund manns búa í bænum Betlehem sem Biblían kennir að þar hafi María mey alið Jesú Krist í jötu. Bærinn tilheyrir nú Vesturbakkanum þar sem Palestínumenn fara með völd en mikil spenna hefur ríkt þar árum saman vegna ágangs ísraelskra landtökumanna og undanfarna mánuði hefur verið mikið af manndrápum á báða bóga. Um sjö þúsund kristnir pílagrímar eru í borginni í dag til að heimsækja staðinn þar sem sagan segir að fjárhúsin þar sem Jesú kom í heiminn hafi staðið sem er einn helgasti staður kristinna manna. Palestínsk stjórnvöld reyna allt til að auka ferðamennsku til Vesturbakkans og þá ekki hvað síst til Betlehem og því er mikið lagt upp úr að tryggja öryggi ferðamannanna. En tuttugu Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa verið myrtir í hnífaárásum eða ákeyrslum á svæðinu á undanförnum mánuðum. Ísraelsk öryggislögregla hefur drepið 120 Palestínumenn sem sagðir eru hafa staðið að þessum árásum. Borgarstjórinn segir borgina hins vegar tilbúna til að taka á kristnum pílagrímum yfir jólin og borgin skarti sínu fegursta.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Sjá meira