Öfgaflokkur Le Pen fékk hvergi flest atkvæði Bjarki Ármannsson skrifar 13. desember 2015 23:33 Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi. Vísir/AFP
Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, viðurkenndi í kvöld ósigur í héraðskosningum þar í landi eftir að útgönguspár bentu til þess að flokkurinn hlyti ekki sigur í neinu héraði. Flokkurinn öfgasinnaði missti niður talsvert forskot frá því í síðustu viku. Þá fór fram fyrri umferð kosninganna og þar fékk Þjóðfylkingin flest atkvæði í sex af þrettán héruðum landsins. Útgönguspár nú í kvöld bentu þó til þess að Le Pen þyrfti að bíta í það súra epli að flokkurinn fengi hvergi flest atkvæði og lenti í þriðja sæti á landsvísu á eftir repúblikanaflokki Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta, og sósíalistaflokki forsætisráðherrans Manuel Valls. Þjóðfylkingin er öfgasinnaður hægriflokkur sem boðar harðlínustefnu í innflytjendamálum og vill taka upp dauðarefsingu í Frakklandi á ný. Fyrir viku virtist sem mannskæðar hryðjuverkaárásir í París á árinu, bæði í janúar og svo í síðasta mánuði, ætluðu að verða til þess að færa Le Pen aukin völd. Le Pen sakaði í gær aðra stjórnmálaflokka um lygar og óheiðarleika en flokkarnir töluðu allir sem einn gegn Þjóðfylkingunni í kosningabaráttunni.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira