Fær Makedónía nýtt nafn? Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. desember 2015 18:15 Makedóníumenn og Grikkir hafa í 24 ár staðið í einni óhefðbundnustu milliríkjadeilu seinni tíma, nafnadeilu. Vísir/Getty
Nikola Gruevski, forsætisráðherra Makedóníu, er reiðubúinn til þess að skoða það að breyta heiti ríkisins en Makedóníumenn og Grikkir hafa í 24 ár staðið í einni óhefðbundnustu milliríkjadeilu seinni tíma, nafnadeilu. Þegar Makedónía lýsti yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu árið 1991 tók ríkið formlega upp heitið lýðveldið Makedónía. Það fór í taugarnar á fjölda Grikkja sem telja að þar með hafi Makedóníumenn stolið heitinu frá gríska héraðinu Makedóníu sem liggur að landamærum Makedóníu og Grikklands. Nú hefur Gruevski hinsvegar sagst vera reiðubúinn til þess að breyta heitinu svo fremi sem nýtt heiti verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Grikkir hafa neitað Makedóníumönnum um inngöngu í NATO og ESB vegna deilunnar Grikkir hafa lengi sakað Makedóníumenn um tilraunir til þess að eigna sér stóra hluta af menningu og sögu Grikkja til þess að byggja upp eigin þjóðarímynd. Má þar nefna Alexander hin mikla en til að mynda er aðalflugvöllur Makedóníu skýrður eftur honum. Deilan hefur orðið til þess að Grikkland beitti neitunarvaldi gegn því að Makedónía fengi inngöngu í NATO og ESB auk þess sem að Sameinuðu þjóðirnar setja fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu í sviga fyrir aftan ríkjaheiti Makedóníu og mun það halda áfram þangað til deilan leysist. Hingað til hafa flestar nafnabreytingartillögur snúist um að bæta við nýja- eða efri- fyrir framan heiti Makedóníu en Grikkjum hefur ekki þótt það duga. Á undanförnum árum hafa samskipti á milli ríkjanna þó batnað hægt og rólega. Árið 2007 slökuðu Grikkir á kröfum sínum og samþykktu að nýtt nafn Makedóníu mætti fela í sér heitið Makedóníu en áður höfðu grískir ráðamenn ekki sætt sig við neitt slíkt. Utanríkisráðherra Makedóníu heimsækir Aþenu á morgun og verður þar með fyrsti ráðherra Makedóníu í fimmtán ár til að heimsækja Grikkland. Í sumar sótti grískur kollegi hans Makedóníu heim og var þar með fyrsti ráðamaður Grikklands til þess að heimsækja Makedóníu í ellefu ár.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Sjá meira