Fjölmargir heiðra minningu Reevu Steenkamp Birgir Olgeirsson skrifar 3. desember 2015 22:15 June Steenkamp er hér föðmuð af ættingja þegar niðurstaða áfrýjunardómstólsins í Suður-Afríku var ljós fyrr í dag. Vísir/EPA
Refsing yfir suður afríska spretthlauparanum OscarPistorius verður líklegast ákveðin í janúar eða febrúar. Þangað til verður hann í stofufangelsi heima hjá föðurbróður sínum í Pretoríu, höfuðborgar Suður-Afríku, eftir að áfrýjunardómstóll breytti dómi yfir honum fyrir að skjóta sambýliskonu sína ReevuSteenkamp til bana í febrúar árið 2013, nánar tiltekið aðfaranótt valentínusardagsins. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir manndráp af gáleysi og dæmdur til fimm ára fangelsisvistar. Hann hafði afplánað eitt ár í fangelsi og átti að afplána restina í stofufangelsi. Áfrýjunardómstóllinn ákvað í dag að breyta dómnum frá manndrápi af gáleysi yfir í morð.Reeva Steenkamp.Vísir/EPAPistorius skaut Steenkamp í gegnum baðherbergishurð á heimili þeirra í Pretoríu en hann hefur ávallt sagst hafa gert þau mistök að telja Steenkamp hafa verið innbrotsþjóf. Var það álit eins dómarans að Pistorius hefði átt að gera sér grein fyrir því að skjóta fjórum skotum í gegnum baðherbergishurð myndi leiða til dauðsfalls. Hann verður leiddur aftur fyrir dómara í janúar eða febrúar þar sem refsing yfir honum verður ákveðin en minnsta mögulega refsingin fyrir morð í Suður-Afríku er fimmtán ára fangelsisvist. Þá gera lög Suður-Afríku ekki ráð fyrir því að mögulegt sé að vera í stofufangelsi lengur en í fimm ár og því er ljóst að Pistorius er aftur á leið í fangelsi. Móðir Reevu, JuneSteenkamp, sást ganga út úr dómhúsinu í dag með eina rauða rós eftir að dómnum hafði verið breytt. June hafði mótmælt upprunalega dómnum yfir Pistorius harðlega og þá gagnrýndi hún einnig að honum hefði verið sleppt úr fangelsi í september eftir aðeins eins árs vist.#ReevaSteenkamp Tweets
Tengdar fréttir Dómi Pistorius breytt í morð Áfrýjunardómstóll Suður Afríku úrskurðaði að fyrri dómurinn yfir Pistorius hafi verið gallaður. 3. desember 2015 08:58 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira
Dómi Pistorius breytt í morð Áfrýjunardómstóll Suður Afríku úrskurðaði að fyrri dómurinn yfir Pistorius hafi verið gallaður. 3. desember 2015 08:58