Erlent

Frakkar vörpuðu tuttugu sprengjum á Sýrland

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Franskar herflugvélar á mynd sem franska varnarmálaráðuneytið dreifði fyrir nokkrum árum.
Franskar herflugvélar á mynd sem franska varnarmálaráðuneytið dreifði fyrir nokkrum árum. Vísir/EPA
Franskar orrustuþotur slepptu nú í kvöld tuttugu sprengjum á höfuðstöðvar Íslamska ríkisins, IS, í Sýrlandi. Frá þessu er greint á Sky news. Þetta kemur í kjölfar hryðjuverkaárásár á París þar sem rúmlega 130 manns létu lífið og á fjórða hundrað slösuðust.

Sprengingarnar lentu á þjálfunarbúðum og vopnalager öfgasamtakanna samkvæmt franska varnarmálaráðuneytinu. Talsmaður þeirra sagði þetta öfluga árás og að hún væri sú stærsta af hálfu Frakka í Sýrlandi.

Til árásarinnar sendu Frakkar tíu af tólf sprengjuflugvélum sínum sem staðsettar eru á herflugstöð þeirra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Jórdaníu.

Francois Hollande Frakklandsforseti sagði í kjölfar árásanna á París að þær væru stríðsyfirlýsing af hálfu IS.


Tengdar fréttir

Hryðjuverk í brennidepli

Hryðjuverkaárásirnar í París síðastliðið föstudagskvöld voru í brennidepli í kappræðum þeirra sem sækjast eftir útnefningu Demókrataflokks Bandaríkjanna til forsetaframboðs aðfaranótt sunnudags. Kappræðurnar hófust á mínútu þögn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×