Ekkert glerþak á Karolina Fund? Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. nóvember 2015 12:45 Glerþakið er notað sem myndlíking fyrir ósýnilegar hindranir sem konur reki sig á þegar þær klífa metorðastigann og nái þar af leiðandi aldrei á toppinn. Vísir/Getty „
Hverfur glerþakið þegar fjöldinn fær að ráða?“ spyr Arnar Sigurðsson, einn af stofnendum fjármögnunarsíðunnar Karolina Fund. Tilefnið er að hann birti tölur sem sýna að nær alveg jafn mörg verkefni karla og kvenna fjármagnast í gegnum síðuna. Raunar hafa konur örlítið forskot en af þeim 163 verkefnum sem fjármagnast hafa í gegnum Karolina Fund standa konur að baki 83 verkefnum en karlar 80. Hlutfallið er því nær alveg jafnt eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.Eins og sjá má er skipting fjármögnunar eftir kynjum nánast jöfn.Karolina Fund„Oft fer fram umræða um skarðan hlut kvenna úr ýmsum samkeppnissjóðum, s.s. kvikmyndasjóði. Það hefur verið bent á það að umsóknir kvenna í kvikmyndasjóð eru færri en hjá körlum og að úthlutanir eru miklu færri til kvenna undanfarin ár,“ segir Arnar og vísar þar til umræðu sem átti sér stað í sumar eftir að Baltasar Kormákur kallaði eftir því að kynjakvóti yrði settur á úthlutanir úr Kvikmyndasjóði. Arnar minnist á glerþakið en stundum er það notað sem myndlíking fyrir ósýnilegar hindranir sem konur reki sig á þegar þær klífa metorðastigann og nái þar af leiðandi aldrei á toppinn. Fræg er t.d. auglýsing VR um útrýmingu kynbundins launamunar þar sem glerþakið kemur fyrir.Einnig má finna lýsingar kvenna í kvikmyndageiranum á glerþakinu í umfjöllun Vísis og Fréttablaðsins um stöðu kvenna í kvikmyndageiranum hér á landi „Okkur finnst það óneitanlega merkilegt að hlutfallið sé svona jafnt í ljósi þess að það er engin sérstök stýring í gangi hjá okkur varðandi verkefni. Það er enginn Lykla-Pétur sem velur verkefni eða dómnefnd önnur en almenningur sjálfur, þessi jafna skipting kemur bara af sjálfu sér.“Fleiri konur en karlar styrkja verkefni á Karolina Fund Samkvæmt tölum frá Karolina Fund er einnig lítill munur á þeirri fjárhæð sem verkefni karla og kvenna ná að safna. Verkefni með karla í forsvari safna rétt rúmlega 4.000 evrum að meðaltali á meðan verkefni með konur í forsvari safna rétt tæplega 4.000 evrum. Athygli vekur þó að karlar og konur hegða sér öðruvísi á Karolina Fund líkt og sjá má meðfylgjandi mynd. „Karlar setja sér mun hærri markmið við safnanir, um 60 prósent hærri en verkefni kvenna, þeir virðast vera kokhraustari,“ segir Arnar. „En það sem safnast í raunveruleikanum virðist vera mjög svipað.“Karlar reyna að sækja sér hærri upphæðir en það sem safnast í raun og veru er mjög jafnt á milli kynja.Karolina FundKonur eru einnig í naumum meirihluta þeirra sem styðja við verkefni á Karolina Fund, 53 prósent þeirra sem styrkja verkefni á síðunni eru konur. Þær virðast hinsvegar styrkja um lægri upphæðir í einu en karlar styrkja um 17 prósent hærri upphæð að meðaltali. Karolina Fund er fjármögnunarsíða þar sem frumkvöðlar sem og aðrir geta safnað fjármagni fyrir fjölbreytt verkefni. Síðasti mánuður var metmánuður í sögu síðunnar sem sett var á laggirnar en í október söfnuðust alls ellefu milljónir.
Tengdar fréttir Föstudagsviðtalið: Balti vill kynjakvóta Baltasar Kormákur var gestur Viktoríu Hermannsdóttur og Ólafar Skaftadóttur í Föstudagsviðtalinu. 24. júlí 2015 07:00 Konur í kvikmyndagerð Umræða um stöðu og þátt kvenna í kvikmyndagerð hefur verið þó nokkur síðustu misserin. Það er þakkarvert hve konur sem starfa við kvikmyndagerð hafa verið ötular við að benda á það ójafnvægi sem ríkir þegar kemur að hlut kvenna. 24. september 2015 08:00 Stormskýlið slær í gegn á Karolina Fund Íslenskt fyrirtæki stefnir á að setja upp rafmagnað strætóskýli og það er bara byrjunin. 4. nóvember 2015 10:00 Vilja bjóða þrjú þúsund gönguleiðir innan þriggja ára Wappið hefur safnað rúmum tveimur milljónum á Karolina Fund. 11. nóvember 2015 11:15 Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands telur tímabundinn kynjakvóta geta orðið til góðs „Þetta er auðvitað vandmeðfarið og yrði að vera mjög tímabundin aðgerð ef að yrði farið í þetta.“ 6. ágúst 2015 11:09 Kvikmyndagerð í blóma en stuðningur af skornum skammti „Ótrúlegir hlutir hafa gerst síðasta árið en ég held að fólk átti sig engan veginn á hversu langt við erum komin alþjóðlega,“ segir Ragnar Bragason sem sendir stjórnvöldum pillu. 7. september 2015 22:01 Íslenskur frumkvöðull þróar Tinder fyrir hunda Safnar fyrir smáforritinu í gegnum fjáröflunarsíðuna Karolina Fund. 10. nóvember 2015 15:45 Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira
Föstudagsviðtalið: Balti vill kynjakvóta Baltasar Kormákur var gestur Viktoríu Hermannsdóttur og Ólafar Skaftadóttur í Föstudagsviðtalinu. 24. júlí 2015 07:00
Konur í kvikmyndagerð Umræða um stöðu og þátt kvenna í kvikmyndagerð hefur verið þó nokkur síðustu misserin. Það er þakkarvert hve konur sem starfa við kvikmyndagerð hafa verið ötular við að benda á það ójafnvægi sem ríkir þegar kemur að hlut kvenna. 24. september 2015 08:00
Stormskýlið slær í gegn á Karolina Fund Íslenskt fyrirtæki stefnir á að setja upp rafmagnað strætóskýli og það er bara byrjunin. 4. nóvember 2015 10:00
Vilja bjóða þrjú þúsund gönguleiðir innan þriggja ára Wappið hefur safnað rúmum tveimur milljónum á Karolina Fund. 11. nóvember 2015 11:15
Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands telur tímabundinn kynjakvóta geta orðið til góðs „Þetta er auðvitað vandmeðfarið og yrði að vera mjög tímabundin aðgerð ef að yrði farið í þetta.“ 6. ágúst 2015 11:09
Kvikmyndagerð í blóma en stuðningur af skornum skammti „Ótrúlegir hlutir hafa gerst síðasta árið en ég held að fólk átti sig engan veginn á hversu langt við erum komin alþjóðlega,“ segir Ragnar Bragason sem sendir stjórnvöldum pillu. 7. september 2015 22:01
Íslenskur frumkvöðull þróar Tinder fyrir hunda Safnar fyrir smáforritinu í gegnum fjáröflunarsíðuna Karolina Fund. 10. nóvember 2015 15:45