Lífið

Sjáðu stórbrotinn flutning Adele á Hello

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gæsahúð, tár, allur pakkinn.
Gæsahúð, tár, allur pakkinn. skjáskot
Sönggyðjan Adele var gestur spjallþáttar Grahams Norton á dögunum þar sem hún flutti smellinn sinn Hello í fyrsta sinn á sviði.

Lagið hefur farið sigurför um heiminn og sett hvert metið á fætur öðru. Myndbandið hefur fengið tugi milljóna áhorfa á Youtube en að meðaltali horfa um ein milljón manna á það á hverri einustu klukkustund.

Sjá einnig: Hlustaðu á nýja lagið með Adele: Aðdáendurnir ærðust á Twitter

Hér að neðan má sjá brot úr flutningi Adele hjá Graham Norton sem mörgum þykir stórbrotinn. Þannig segir blaðamaður Vanity Fair að hann hafi átt erfitt með að halda aftur af tárunum við hlustunina.

Sjón og heyrn er sögu ríkari. Flutningurinn hefst þegar um 36 sekúndur eru liðnar af myndbandinu.


Tengdar fréttir

Adele skellir á Silvíu

Breska söngkonan gefur ekki mikið fyrir skrípalæti þeirrar íslensku í nýju myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×