Love frábær í sigri Cleveland | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2015 07:30 Kevin Love treður með látum. vísir/getty
Kevin Love átti stórgóðan leik fyrir Cleveland Cavaliers í nótt þegar liðið lagði Indiana Pacers á heimavelli, 101-97. Kraftframherjinn öflugi skoraði 22 stig og tók 19 fráköst, en LeBron James lét ekki sitt eftir liggja með 29 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum. Paul George var frábær í liði Indiana með 32 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar en það dugði ekki til. Indianaer búið að vinna þrjá leiki og tapa fjórum af fyrstu sjö en Cleveland byrjar mjög vel; búið að vinna sex af sjö. LeBron gegn George: Los Angeles Lakers er áfram í miklum vandræðum en liðið tapaði fimmta leiknum af sem í nótt þegar það sótti Knicks heim til New York. Lokatölur, 99-95, fyrir heimamenn. Carmelo Anthony var stigahæstur eins og svo oft áður hjá Knicks, en hann skoraði 24 stig og tók 8 fráköst. Robin Lobez skoraði 14 stig og tók 13 fráköst og lettneski framherjinn Kristaps Porzingis var einnig með tvennu; 12 stig og 10 fráköst. Oklahoma City Thunder hefur ekki byrjað jafn vel og margir reiknuðu með, en það vann fjórða leikinn af sjö í nótt þegar það valtaði yfir Phoenix Suns á heimavelli, 124-103. Kevin Durant var í miklum ham og skorraði 32 stig auk þess sem hann tók 11 fráköst, en Russell Westbrook skoraði 21 stig og tók 13 fráköst. Eric Bledsoe var stigahæstur hjá Suns með 28 stig, en Phoenix er búið að vinna þrjá leiki og tapa fjórum.Úrslit næturinnar: Cleveland Cavaliers - Indiana Pacers 101-97 New York Knicks - Los Angeles Lakers 99-95 Miami Heat - Toronto Raptors 96-76 OKC Thunder - Phoenix Suns 124-103 Portland Trail Blazers - Detroit Pistons 103-120Durant setti 32 stig: Russell Westbrook stelur boltanum og treður:
NBA Mest lesið Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Enski boltinn Þjálfari Juventus pirraður á fagnandi Alberti Fótbolti Alonso tekur við Chelsea Enski boltinn Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Enski boltinn ÍBV - Víkingur R. | Nýliðarnir taka á móti Íslandsmeisturunum Fótbolti Mourinho fór taplaust í gegnum tímabilið: „Framtíð mín mun ráðast í vikunni“ Fótbolti McGregor snýr aftur í búrið og berst við Holloway í júlí Sport Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Handbolti „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Fótbolti Dagskráin í dag: Heil umferð í Bestu karla, enski boltinn og ögurstund í Njarðvík Sport Fleiri fréttir Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ Sjá meira