Innlent

Felldu tillögu um sérstaka umræðu við Sigmund Davíð um afnám verðtryggingar

Birgir Olgeirsson skrifar
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, fór í störukeppni við Sigmund Davíð á meðan hann beið þess að ráðherra yrði við beiðni um sérstaka umræðu um afnám verðtryggingar.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, fór í störukeppni við Sigmund Davíð á meðan hann beið þess að ráðherra yrði við beiðni um sérstaka umræðu um afnám verðtryggingar. Vísir/Friðrik Þór Halldórsson
Tillaga stjórnarandstöðunnar um sérstaka umræðu við forsætisráðherra um afnám verðtryggingarinnar var felld á þingi rétt í þessu. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ítrekað reynt að fá umræðu eða svör frá forsætisráðherra um stöðu á vinnu við afnám verðtryggingarinnar. Fyrst bað hún um sérstaka umræðu í febrúar síðastliðnum, lagði hana aftur fram í haust og ítrekaði hana í gær.

Stjórnarandstaðan fór fram að greidd yrði tillaga um dagskrárbreytingu í morgun og þessi umræða tekin. Farið var fram á nafnakall við atkvæðagreiðslu og fór svo að tillagan var felld.

Ráðherra með undanbrögð

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í umræðu um atkvæðagreiðsluna að forsætisráðherra hefði sýnt undanbrögð í þessu máli með því að segja það á borði Bjarna Benediktssonar, efnahags- og fjármálaráðherra. Sagði Helgi Hjörvar það einkennilegt í ljósi þess að Sigmundur Davíð hefði rætt Evrópusambandið og málefni innflytjenda á þingi þó svo að málin tilheyri öðrum ráðuneytum.

Helgi Hjörvar sagði þessi rök Sigmundar Davíðs vera útúrsnúning og flótta undan stærsta kosningaloforðs og stefnumáls eigins flokks.

Vandræðalegt fyrir þingið

Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði þetta vera vandræðalega stöðu fyrir Alþingi að beita þurfi dagskrártillögu til að fá eðlileg samskipti við forsætisráðherra. Hún sagði forsætisráðherra hafa sagt af sér í fyrsta málaflokknum sem snýr að verðtryggingunni og spurði hvaða mál væri næst á dagskrá hjá Sigmundi.

Eftirvænting eftir atkvæðum framsóknarmanna

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagðist hlakka til að sjá hvernig Framsóknarflokkurinn greiddi atkvæði um þetta mál þar sem þetta væri eitt af hans kosningaloforðum. Allur þingflokkur Framsóknarflokksins sagði nei við dagskrárbreytingunni og sagði Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, að hann segði nei við þessari tillögu því hún fjallaði um kosningaloforð Framsóknarflokksins en væri ekki efnisleg umræða um verðtrygginguna.

Sagður bara vilja ræða þjóðfánann og þjóðsönginn

Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði Sigmund Davíð ítrekað neita umræðu en væri fús til að ræða þjóðfánann, skjaldarmerkið og þjóðsönginn. Sagði Árni Páll það sýna stöðuna sem Sigmundur Davíð væri í að Sjálfstæðisflokkurinn sé farinn að móta Bjarna Benediktsson stól forsætisráðherra.

Einkennilegt að ræða í útvarpi en ekki við þingið

Katrín Jakobsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði Sigmund hafa greint þáttastjórnendum þáttarins Í bítið á Bylgjunni frá því að hann væri til í að ræða þetta mál við hvern sem er, meira segja Samfylkinguna. Þess vegna væri það einkennilegt að hann vildi ekki eiga þessa umræðu við þingið. Hann hafi rætt við Katrínu um málefni flóttamanna, þó svo að málið heyri ekki undir hans ráðuneyti.

Sakaði stjórnarandstöðuna um málþóf

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þessa dagskrártillögu fordæmalausan leikaraskap. Hann sagði fjölda leiða til að kalla eftir umræðu eða svörum frá forsætisráðherra, fyrirspurningar, skriflegar, óundirbúnar og flutningar þingmála. Hann sagðist velta því fyrir sér hvort að þessi tillöguflutningur væri tilraun til að tefja annað mál sem væri á dagskrá á þinginu í dag.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að umrætt mál væri lagafrumvarp utanríkisráðherra um Alþjóða þróunarsamvinnu Íslands.

Sagði formenn ganga á bak orða sinna

Vigdís Hauksdóttir spurði forseta Alþingis hvort fundur hefði átt sér stað í forsætisnefnd með formönnum þingflokka og að þar hefði dagskrá vikunnar verið samþykkt. Hún fékk staðfestingu á því og spurði hvernig væri hægt að eiga samstarf við formenn stjórnarandstöðuflokkanna ef þeir færu á bak orða sinna varðandi þingdagskránna með því að leggja þessa tillögu að dagskrárbreytingu fram.

Árni Páll sagði þingið almennt eiga greiðan aðgang að ráðherrum ríkisstjórnarinnar og því beri að þakka. Þeir svari fyrirspurnum undanbragðalaust en þannig væri ekki farið með forsætisráðherra.

Sigmundur segir málið heyra undir Bjarna

Sigmundur Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Í bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann sagðist tilbúinn að ræða afnám verðtryggingarinnar við hvern sem er. „Ég vil ræða verðtrygginguna við alla,“ sagði Sigmundur sem nefndi Samfylkinguna og þáttastjórnendur en sagði að þar sem Sigríður Ingibjörg væri að biðja um sérstaka umræðu um málið væri það ráðherrann sem er yfir málaflokknum sem sitja ætti fyrir svörum. Það er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.


Tengdar fréttir

Verðtrygging áfram en tímalengd breytt

Ekki er unnið að afnámi verðtryggingar í fjármálaráðuneytinu, þrátt fyrir orð forsætisráðherra um annað. Lenging lágmarkstíma verðtryggðra lána í tíu ár og stytting úr 40 í 25 ár er til skoðunar. Mögulegt er að frumvarp komi fram í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×