Bíó og sjónvarp

Dagur Kári gat horft í augun á forsætisráðherra og sagst vera skuldlaus þegn

Birgir Olgeirsson skrifar
Dagur Kári Pétursson í Hörpu í gær þar sem hann fékk kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs afhent.
Dagur Kári Pétursson í Hörpu í gær þar sem hann fékk kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs afhent. Vísir/Anton Brink
Íslensk kvikmyndagerð er á blússandi siglingu um þessar mundir og íslenskir listamenn halda íslensku þjóðinni upp í sjálfboðavinnu.

Þetta er meðal þess sem leikstjórinn og handritshöfundurinn Dagur Kári Pétursson hefur að segja þegar tæpur sólarhringur er frá því að hann hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í gærkvöldi fyrir kvikmyndina Fúsa ásamt framleiðendum hennar Baltasar Kormáki og Agnesi Johansen.

Dagur Kári flutti óundirbúna þakkarræðu eftir að leikstjórinn Benedikt Erlingsson afhenti honum verðlaunin en Benedikt hlaut þessi verðlaun í fyrra fyrir kvikmyndina Hross í oss. Dagur Kári þakkaði leikurum myndarinnar fyrir að glæða persónur myndarinnar lífi og þá sérstaklega aðalleikaranum Gunnari Jónssyni.

Þarf að hlúa betur að listgeiranum

Í samtali við Vísi í dag segir Dagur Kári að það þurfi að hlúa mun betur að íslenska listgeiranum. „Íslensks kvikmyndagerð er á blússandi siglingu akkúrat núna. Það eru margar góðar myndir í umferð og við unnum þessi verðlaun líka í fyrra. Það sem manni er efst í huga núna er í rauninni hvernig íslenskir listamenn eru að halda þjóðinni uppi í sjálfboðavinnu og hvað þetta er engan veginn sjálfgefið og það þarf að hlúa miklu betur að listgeiranum almennt með stuðningi frá landi og þjóð.

Benedikt Erlingsson afhneti Degi Kára kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í gærkvöldi en Benedikt hlaut verðlaunin í fyrra fyrir myndina Hross í oss. Vísir/Anton Brink
„Gjaldþrota þriðja hvert ár“

Með fram kvikmyndagerðinni er Dagur Kári yfirkennari leikstjórnardeildar danska kvikmyndaháskólans. „Ég er í rauninni í fremstu víglínu meðal íslenskra kvikmyndagerðarmanna en ég er kennari á daginn og ég held að það sé mjög algengt meðal íslenskra listamanna að þeir lifi ekki af sinni list þrátt fyrir að þeir standi mjög framarlega. Ég held að ég verði gjaldþrota þriðja hvert ár og ég veit að öll framleiðslufyrirtæki berjast í bökkum og þetta er eitthvað sem þarf að laga.“

Spurður hvort kollegar hans á Norðurlöndunum séu í sömu sporum og hann segist hann telja svo ekki vera. „Ég held að það sé mun öflugri kragi í kringum allt listakerfið í Skandinavíu.“

Réði ekki við allskonar bakreikninga frá skattinum

Þeir sem hljóta kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs skipta á milli sín 350 þúsund dönskum krónum, sem nemur um 6,6 milljónum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Skiptist það í þessu tilviki á milli leikstjóra, handritshöfundar og framleiðenda en Dagur Kári sagði í gær að verðlaunaféð væri kærkomið því hann skuldaði svo mikið í skatt.

Spurður nánar út í þessi ummæli segir hann vandræði sín gagnvart skattinum hafa gert vart við sig þegar hann flutti frá landinu.

„Ég varð þess áskynja um leið og ég flutti úr landi að þá hertist eftirlit með mér til muna. Um leið og einhver flytur frá landinu þá hugsar kerfið: Hvað hefur þessi maður að fela? Þannig að ég fékk allskonar bakreikninga sem ég ræð engan veginn við,“ segir Dagur og bætir við að það sé léttir að geta gert upp þessa skuld.

„Ég gat horft í augun á forsætisráðherra og sagt: Á morgun verð ég skuldlaus þegn.“

Með nokkur verkefni á teikniborðinu

Hann segist vera með tvö til þrjú kvikmyndaverkefni á teikniborðinu en of snemmt sé að segja nánar frá þeim á þessum tímapunkti.

Í rökstuðningi Norðurlandaráðs segir að Fúsi sé fáguð, stílhrein og full af myndrænni hugmyndaauðgi og fjalli um mikilvægi þess að varðveita gæsku sína og sakleysi í óárennilegum heimi. Er Fúsi sögð grípandi og listilega upp byggð kvikmynd sem bregður upp trúverðugri mynd af blíðum risa og hnitmiðuðum lýsingum á konum sem standa honum næst.

Fúsi hafði áður sópað til sín þremur helstu verðlaununum á Tribeca-kvikmyndahátíðinni í NewYork í apríl síðastliðnum. Var Fúsi valin besta leikna myndin auk þess sem Gunnar Jónsson fékk verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki og var Dagur Kári verðlaunaður fyrir besta handrit leikinnar myndar.


Tengdar fréttir

Fúsi sópaði til sín verðlaunum

Fúsi, kvikmynd Dags Kára Péturssonar, fékk þrjú helstu verðlaun Tribeca kvikmyndahátíðarinnar í New York í gær.

Fúsi fær frábæra dóma úti í Danmörku

„Dagur Kári minnir á sig með sinni fjórðu kvikmynd heima á Íslandi þar sem hann kynnir einfalt meistarverk frá norður Atlantshafi sem snertir við áhorfendum.“

Ég er bara lítill strákur í hinum stóra heimi kvikmyndanna

Gunnar Jónsson leikari er í aðalhlutverki í nýrri kvikmynd Dags Kára, Virgin Mountain eða Fúsi, sem verður frumsýnd í Berlín um helgina. Hann segist aldrei hafa fengið jafn langan tíma til þess að undirbúa sig fyrir eitt hlutverk.

Fúsi fæddur á flugvelli

Dag Kára Péturson hafði lengi langað til þess að vinna með leikaranum Gunnari Jónssyni og varð það að veruleika í Fúsa sem frumsýnd er í dag á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×