Matur

Karamellupopp að hætti Evu Laufeyjar

vísir/evalaufey
Popp með saltaðri karamellusósu

Söltuð karamellusósa

100 g sykur

3 msk smjör

½ - 1 dl rjómi (má vera meira ef þið viljið þynnri sósu)

Sjávarsalt

1 poki popp eða einn meðalstór pottur af poppi

Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við.

Hellið sósunni yfir poppið og blandið vel saman. Berið strax fram og njótið.

Missið ekki af Matargleði Evu klukkan 19:50 í kvöld á Stöð 2. Í þætti kvöldsins er sænsk matargerð í aðalhlutverki.


Tengdar fréttir

Sjúklega gott súkkulaði fondú

Það þarf ekki að vera flókið að útbúa veitingar fyrir vinahópinn og algjör óþarfi að stressa sig korter fyrir boðið. Hér er skotheld uppskrift að ljúffengu súkkulaði fondú sem slær alltaf í gegn og tekur enga stund að búa til.

Hvítlauksmarinerað lambalæri með Bernaise sósu

Í síðasta þætti af Matargleði var sunnudagur til sælu tekinn alla leið. Franskt eggjabrauð, ístertan hennar ömmu og auðvitað sunnudags lambalærið í hvítlauksmarineringu með ómótstæðilegri Bernaise sósu frá grunni.

Haustleg gúllassúpa

Það er fátt betra en matarmikil og bragðgóð súpa á köldum vetrardögum sem yljar manni að innan. Gott nautakjöt, beikon og grænmeti er uppistaðan í þessari súpu sem þið ættuð að prófa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×