Fundur í dag hjá ríki og BSRB Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. október 2015 07:00 Baráttufundur SFR, SLFÍ og LL um bætt kjör var í Háskólabíói um miðjan september. vísir/antonbrink
Undirritun kjarasamninga Starfsgreinasambandsins (SGS) og Flóabandalagsins við ríkið sem fara átti fram í gær var frestað þangað til á morgun að beiðni ríkisins. Heimildir blaðsins herma að frestunin eigi rót sína í þeirri vinnu sem á sér stað á vettvangi svonefnds SALEK-hóps þar sem unnið er að því að ná „heildstæðri niðurstöðu“ þar sem undir séu allir samningar ríkisins við stéttarfélög. Á meðan samningur SGS og Flóans hefur legið fyrir í rúma viku, er kjaradeila þriggja stærstu félaga BSRB strand og búið að boða verkföll sem að óbreyttu hefjast í lok næstu viku. Fundur hefur hins vegar verið boðaður hjá BSRB félögunum þremur, SFR – stéttarfélagi í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélagi Íslands (SLFÍ) og LL (Landssambandi lögreglumanna), með samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara klukkan tvö í dag. Þegar samninganefndirnar funduðu síðast fyrir viku var staða deilunnar óbreytt og bar enn mikið í milli. SALEK-hópurinn (samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga) fundaði á föstudag, auk þess sem heimildir blaðsins herma að fundað hafi verið um helgina og í gær. Í hópnum eiga sæti ríkissáttasemjari og fulltrúar samtaka á vinnumarkaði, bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfinga. Meðal þess sem rætt hefur verið á þessum vettvangi, þar sem að frumkvæði ríkissáttasemjara hefur síðustu vikur verið leitað leiða til að innleiða hér nýtt fyrirkomulag kjaraviðræðna að norrænni fyrirmynd, er hvort samræming lífeyrisréttinda milli opinbera og almennavinnumarkaðarins geti verið hluti af „mjúkri lendingu“ yfirstandandi samningalotu.Árni Stefán Jónsson. formaður SFR, vonast eftir útspili ríkisins í dag.vísir/antonÁrni Stefán Jónsson, formaður SFR, segir vonir standa til þess að á fundinum í dag leggi ríkið eitthvað meira til málanna en verið hafi á síðustu fundum, sér í lagi í ljósi þess að fyrir liggi samningur ríkisins við Flóann og SGS. Til þess að ná samningum við SFR, SLFÍ og LL þurfi hins vegar að ræða við félögin. Að ná niðurstöðu sem einnig feli í sér samræmingu lífeyrisréttinda sé bæði stórt og flókið viðfangsefni. „Það er mjög erfitt að klára þetta einn tveir og þrír. En það er ennþá verið að ræða þetta,“ segir hann.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira