Formúla 1

Rosberg og Kvyat fljótastir í Singapúr í dag

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni.
Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni. Vísir/getty
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins. Daniil Kvyat á Red Bull var fljótastur á seinni æfingunni.

Liðsfélagi Rosberg, Lewis Hamilton var annar á fyrri æfingunni. Daniel Ricciardo á Red Bull þriðji og Sebastian Vettel á Ferrari fjórði. Kimi Raikkonen varð fimmti og jafnframt síðasti ökumaðurinn sem var innan við sekúndu á eftir Rosberg.

Brautin í Singapúr er frekar þröng götubraut. Aflmunurinn sem Mercedes hefur notið undanfarið hefur því minni áhrif. Red Bull var nær toppnum en áður og Williams var fjarri góðu formi. Valtteri Bottas var sjötti og Felipe Massa 17.

Alexander Rossi sem tekur þátt í sinni fyrstu fullu keppnishelgi um helgina skellti Manor bílnum á varnarvegg. Hann missti stjórn á bílnum og braut fjöðrunarbúnað á bílnum.

Daniil Kvyat kom Red Bull á toppinn í fyrsta skipti á æfingu í ár.Vísir/Getty
Raikkonen varð annar á seinni æfingunni. Ricciardo varð þriðji, Hamilton varð ekki nema fjórði. Fernando Alonso varð áttundi á McLaren bílnum, hann var síðasti maðurinn á sömu sekúndu og Kvyat.

Will Stevens klessti á varnarvegg á hinum Manor bílnum, svo það hefur verið nóg að gera í bílskúrnum hjá Manor í dag og verður fram eftir.

„Við erum ekki kát með frammistöðu okkar í dag. Okkur tókst ekki að ná gripi í dekkin,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Dagurinn byrjaði vel hjá ALexander (Rossi). Hann hefur sýnt það í gegnum árin að han er einkar hæfileikaríkur. Allar upplýsingar hjálpa okkur að taka ákvörðun um ökumenn næsta árs. Við erum að flytja í þessum töluðu orðum. Liðið verður allt undir einu þaki í fyrsta skipti í næstum 12 mánuði,“ sagði John Booth, keppnisstjóri Manor.

Tímatakan verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun, útsendingin hefst klukkan 12:50. Keppnin verður svo í beinni á Stöð 2 Sport frá klukkan 11:30 á sunnudag.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit dagsins og helgarinnar, þau uppfærast eftir því sem helgin líður.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Það helsta frá Monza

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark og svo stóð hugsanlega til að dæma hann úr leik. Kimi Raikkonen átti frábæra tímatöku en hvað svo?

Rossi tekur sæti Merhi hjá Manor

Alexander Rossi mun keyra fyrir Manor liðið í næstu fimm keppnum. Fyrsta keppnin verður í Singapúr um komandi helgi.

Rosberg notar síðustu vélina í Singapúr

Nico Rosberg, ökumaður Mercedes liðsins mun byrja að nota fjórðu vélina á tímabilinu í Singapúr um helgina. Það er síðasta nýja vélin sem hann má nota án þess að hljóta refsingu fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×