Formúla 1

Rossi tekur sæti Merhi hjá Manor

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Alexander Rossi
Alexander Rossi Vísir/Getty
Alexander Rossi mun keyra fyrir Manor liðið í næstu fimm keppnum. Fyrsta keppnin verður í Singapúr um komandi helgi.

Rossi tekur sæti Roberto Merhi sem verður áfram hjá liðinu sem varaökumaður. Hann mun taka þátt í rússnesska kappakstrinum og í síðustu keppni tímabilsins í Abú Dabí.

Keppnin í Singapúr um helgina verður fyrsta Formúlu 1 keppnin sem Rossi tekur þátt í.

Rossi hafði áður verið varaökumaður Caterham, hann tók þátt í þremur æfingum árin 2013 og 2014.

„Ég er afar þakklátur fyrir tækifærið sem Manor Marussia er að veita mér. Ég er ánægður með að liðið hefur trú á mér, ég er búinn að vera tilbúinn undir þetta í dágóðan tíma,“ sagði Rossi.

„Singapúr brautin er mjög skemmtileg og frumraunin gæti ekki komið á betri tíma. Það er mikil vinna framundan og ég hlakka mikið til að enda 2015 með hvelli.

John Booth, keppnisstjóri Manor segir að Rossi eigi eftir að „standa sig mjög vel“.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Það helsta frá Monza

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark og svo stóð hugsanlega til að dæma hann úr leik. Kimi Raikkonen átti frábæra tímatöku en hvað svo?

Magnussen: Ég myndi elska að aka fyrir Haas F1

Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins hefur sagt að hann "myndi elska að aka fyrir Haas“ að því gefnu að hann fái ekki sæti hjá McLaren á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×