Góðir eiginleikar eða slæmir Jón Aðalsteinn Hermannsson skrifar 1. september 2015 09:00 Bréf til félagsmálaráðherra og fleiri: Helstu eiginleikar þingmanna og ráðherra þurfa að vera, auk auðmýktar, dálítið vit eða bara skynsemi. Forræðishyggja er ekki góður eiginleiki, en sá galli er áberandi hjá núverandi ráðherrum. Reyna nú að koma málum svo fyrir að þeirra stjórnvaldsákvarðanir standi lengi eftir að þjóðin verður búin að hafna þeim og flokkunum. Ólafur Ragnar, forseti á Bessastöðum, reyndist ekki alveg vera sjálfum sér samkvæmur, er hann tók lítið tillit til mótmæla og fjölda undirskrifta er ríkisstjórnin gerði frjálsu makrílveiðarnar ófrjálsar og kvótasetti, þá líka orðnar söluvara. Þó er talið að undirskriftirnar hafi haft áhrif og mildað frumvarpið þar sem þjóðareign á fiskinum í sjónum átti að færa til útgerðarmanna, frá þjóðinni. Það tókst ekki hjá sjávarútvegsráðherra. Hlutverk félagsmálaráðherra, Eyglóar Harðardóttur, er mikilvægt í þjóðfélaginu. Tryggingastofnun heyrir undir þann ráðherra. Fáir vita, eða muna, hvert var hennar fyrsta verk sem ráðherra, það var að færa eldri borgurum strax frá 1. júlí 2013 hækkun eftirlauna en aðeins þeim er höfðu tekjur yfir 200 þús. kr.VinsældakappRíkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur skerti greiðslur til þeirra sömu frá TR en hlífði tekjulægra fólkinu. Þá var skilað, nú var gert öfugt. Þeir sem hæstu upphæðina fengu, fengu um 90 þús. kr. á mánuði. En 1. ágúst fengu þeir lægra launuðu, það er stóri hópurinn, 3.665 kr. Og aftur 15. janúar 2014 um 5.000 kr. Það var og er hin nýja stefna: Auka ójöfnuð meðal landsmanna til að afla Framsóknarflokknum vinsælda í kappi við Sjálfstæðisflokk, flokk sem aldrei hefur farið dult með sína stefnu, að gera efnaða fólkið efnaðra á kostnað þeirra tekjulægstu. Samkvæmt þekkingu minni á Framsóknarflokknum, þá var hann flokkur jafnaðar. Hvað nú? Nú talar fjármálaráðherra um hækkun til tryggingaþega um þriðjung af þeirri upphæð sem samið var um á almennum launamarkaði við ASÍ. Þannig hafa ráðherrar aukið launamun stórlega. Er nokkur furða þótt maður treysti ekki nokkrum þingmanni eða ráðherra Framsóknar til nokkurra góðra verka? Ég skora á félagsmálaráðherra að jafna tekjur í þjóðfélaginu. Árið 2013 var Ísland efst á lista allra þjóða þar sem launamunur var minnstur; að hugsa sér hve skamman tíma tekur að breyta þeirri mynd. Nú birtist opinberlega skrá um skattgreiðslur t.d. forsætisráðherra, skattgreiðsla hans hefur lækkað milli ára um 10 milljónir, gott að eiga góðan vin sem er fjármálaráðherra. Hið sama mun gilda um svo marga auðmenn á Íslandi. Opinber gjöld þeirra hafa stórlækkað og samtímis hafa útgjöld til eldri borgara og öryrkja og heilbrigðismála líka lækkað. Í frjálsu og upplýstu þjóðfélagi, þá eiga skattaskil að vera aðgengileg fyrir allan almenning, leyndarhyggjan burt, en líklegt er að núverandi stjórnvöld reyni að koma leynd á, og bannað verði að birta gögn um skattaskil.OkurleigaÞað virðist vera svo, að þjóðin sé að skiptast í tvær stéttir. Efnaða yfirstétt sem öllu ræður, stjórnmálamenn og vel ættað fólk, og svo fólkið, sem engu ræður og ekkert á. Margsannað er að almenn velmegun meðal þjóða skapar traustan efnahag, misskipting ekki. Bið ykkur mína góðu vini að skýra út fyrir mér hvernig þið farið að því að lifa á 182 þús. kr. á mánuði og líka hvernig þið getið átt íbúð, sem kostar ekkert að reka, ekki krónu. Það er reglan hjá TR að leigutekjur eru þannig að öll upphæðin er frádráttarbær samkvæmt reglum TR, frá greiðslum TR til okkar. Hjá skattinum er 41% af upphæðinni dregið frá, sem kostnaður við eign, sem er eðlilegt. Hjá TR er ekkert eðlilegt. Minnist sögunnar frá byggingarnefnd Akureyrarbæjar, þegar bygging verkamannaíbúða hófst uppi á Brekkunni, þá var ekki gert ráð fyrir bílastæðum, með þeim rökum að „verkamenn ættu aldrei bíl“. Öryrkjar og eldri borgarar eiga ekki að eiga bíl eða íbúð. Ég veit að á litlum og frekar illa hönnuðum íbúðum hér við hliðina á minni íbúð í blokkinni er leigan 120 þús. plús rafmagn á mánuði. Þá eru 60 þús. eftir á mánuði til að lifa. Ég veit að þið, vinir mínir, eruð allir stóreignafólk og eruð í Framsóknarflokknum. Það þarf ekki að þýða að mér sé illa við ykkur, því ég veit að ekkert ykkar mun nokkurn tíma í framtíðinni kjósa Framsókn því sá flokkur verður ekki til. Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu auðmannafylgi. Það verður erfitt líf fyrir Bessastaðabónda, enda hættur að ferðast með „útrásarvíkingum“ og boða fagnaðarerindi þeirra, nú hefur hann ekkert til að segja frá og situr bara heima. Svona til upprifjunar, þá voru það tveir menn á Íslandi sem gagnrýndu Rannsóknarskýrslu Alþingis, forseti vor, fyrrverandi stjórnmálamaður, og þáverandi seðlabankastjóri DO, líka fyrrverandi stjórnmálamaður. Hann sagðist „sjá eftir öllum þeim skógi sem farið hefði í útgáfu skýrslunnar“, forsetinn taldi hana fulla af rangfærslum um sig, enn og aftur, best að gleyma ferðalögunum í einkaþotu til útlanda og ræðunum um ágæti og yfirburði útrásarvíkinga. Með baráttukveðju okkar til okkar ástsælu stjórnmálamanna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Ertu bitur? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen Skoðun Er hægt að læra af draumum? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ertu bitur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Er hægt að læra af draumum? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Afstæði Ábyrgðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen skrifar Skoðun Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson skrifar Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr skrifar Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar Skoðun Þetta er allt hinum að kenna! Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Sleppir ekki takinu svo auðveldlega aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir skrifar Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Sjá meira
Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar
Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar
Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir Skoðun