Körfubolti

Haukur: Kominn tími til að við hittum eins og brjálæðingar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi í baráttunni gegn Ítölum.
Haukur Helgi í baráttunni gegn Ítölum. Vísir/Getty
Haukur Helgi Pálsson lék manna mest þegar íslenska körfuboltalandsliðið tapaði á móti Serbíu í þriðja leik sínum á fjórum dögum.  Hefur Haukur Helgi spilað í 92 mínútur í fyrstu þremur leikjum íslenska liðsins.

Íslenska liðið tapaði naumlega í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu en liðið missti Serbana á flug í seinni hálfleiknum í gær.

„Þeir voru bara góðir. Þeir fóru að hitta úr skotunum sínum og fóru svolítið að leika sér að okkur. Þegar kemur að þessu þá þurfum við bara að fara að hamra á þeim og ekki leyfa þeim að fá auðveld sniðskot. Við héldum samt alltaf áfram," sagði Haukur Helgi eftir leik.

Fyrri hálfleikurinn var samt í takt við það sem var að gerast í fyrstu tveimur leikjunum hjá liðinu.

„Við vorum að fá fín skot í fyrri hálfleiknum en vorum bara ekki að hitta úr þeim. Það er kominn tími til að við dettum niður á einn leik þar sem að við hittum eins og brjálæðingar. Þá tökum við einn leik hérna," sagði Haukur Helgi.

Haukur segir að Serbarnir hafi nýtt sér vel körfuboltagreind sína og með því tekist að finna lausnir á varnarleik íslenska liðsins.

„Við þurfum samt að skoða hitt og þetta eins og með varnarleikinn. Þeir vissu að við vorum að fara að tvídekka á niðri við körfuna og þá biðu þeir bara og gátu síðan fundið lausa manninn út frá því. Þeir voru búnir að lesa svolítið vörnina okkar og þetta var aðeins of auðvelt fyrir þá," sagði Haukur Helgi

„Við byrjuðum mjög vel í fyrri hálfleik að gera það sem við vildum gera. Í seinni hálfleik vissu þeir alveg hvað við myndum gera og við vorum líka orðnir þreyttir líka og tókst ekki eins vel að pressa allan tímann. Þá var auðveldara fyrir þá að fá boltann inn í teig," segir Haukur.

Næsti leikur er á móti Spáni í kvöld en liðin mætast klukkan 19.00 að íslenskum tíma eða klukkan níu hér út í Berlín.

„Nú er bara annað risalið á morgun (í dag). Við þurfum að taka góða endurheimt núna. Leikurinn er klukkan níu á morgun og við fáum því meira en 24 tíma til að jafna okkur. Við þurfum bara að nýta þann tíma til að vera hjá Jóa (Jóhannes Marteinsson) og Pétri (Einar Pétur Jónsson) í sjúkraþjálfun," sagði Haukur.


Tengdar fréttir

Lenda íslensku strákarnir í reiðum Spánverjum í kvöld?

Íslenska körfuboltalandsliðið spilar sinn fjórða leik á Evrópumótinu í körfubolta í kvöld þegar liðið mætir tvöföldum Evrópumeisturum Spánverja en þeir fylgdu eftir tapi í fyrsta leik með 27 stiga sigri á Tyrkjum.

Við erum ekkert saddir

Hvíldardagurinn fór illa með hnéð á Jóni Arnóri Stefánssyni.

Eyðimerkurgangan á enda | Fyrstu körfurnar hjá Pavel

Pavel Ermolinskij komst loksins á blað á móti Serbíu í þriðja leik liðsins í gær en hann skoraði ekki körfu í fyrstu tveimur leikjunum á Evrópumótinu í Berlín sem voru á móti Þýskalandi og Ítalíu.

Finnur: Eigum enn inni þennan draumaskotleik

Finnur Freyr Stefánsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í körfuknattleik sá jákvæða punkta í 29 stiga tapi gegn Serbíu í gær en íslenska liðinu gekk illa að hitta úr skotunum sínum í leiknum.

Pavel: Ég er jóker hérna

Pavel Ermolinskij spilar margar stöður fyrir íslenska körfuboltalandsliðið á Evrópumótinu í Berlín en þjálfarateymið reynir oft að stilla honum upp á óvenjulegum stöðum til að reyna nýta sér hæð og fjölhæfni hans betur.

Hef ennþá hraðann, sem betur fer

Logi Gunnarsson bætti í gær met Herberts Arnarsonar yfir flesta leiki fyrir íslenska karlalandsliðið í Evrópukeppni. Logi var langstigahæstur í stóru tapi á móti sterku liði Serba í gær og var stoltur af liðinu þrátt fyrir skellinn.

Helgi Már verður ekki með í kvöld vegna meiðsla

Helgi Már Magnússon, leikmaður íslenska landsliðsins í körfuknattleik, verður ekki með í leiknum gegn Spánverjum í kvöld vegna meiðsla en þetta staðfesti aðstoðarþjálfari landsliðsins í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×