Lífið

María Birta á leiðinni til Dr. Phil

Stefán Árni Pálsson skrifar
María Birta og Elli verða í salnum.
María Birta og Elli verða í salnum. vísir
Leikkonan, fyrirsætan og verslunareigandinn María Birta verður á áhorfendapöllunum hjá stjörnusálfræðingnum Dr. Phil í dag.

Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni en eiginmaður hennar ákvað að koma henni á óvart og í raun hrekkja hana. María býr Kaliforníu ásamt eiginmanni sínum Ella Egilssyni.

„Elli ákvað að djóka aðeins í mér og sendi e-mail á Dr. Phil,“ segir hún á Facebook.

Hann mun hafa sent tölvupóst til umsjónamanna þáttarins og sagt að María væri mjög mikill aðdáandi og það væri draumur hennar að vera í salnum.

„Til að gera geri langa sögu stutta. Það var verið að hringja í Ella og þeir sögðust vera mjög impressed yfir þessu uppátæki hans að koma mér svona á óvart með að uppfylla þennan mikla draum minn.“

María segir að þau hjónin eigi að mæta í þáttinn í dag.

„Ég er í kasti.... ég þarf að fara að step up my game í stríðkeppninni okkar!!! Þetta toppar ALLT!!!“

Dr. Phil er frægasti sálfræðingur heimsins og hefur hann haldið úti sjónvarpsþætti síðan árið 2002. Hann komst fyrst upp á sjónarsviðið sem reglulegur gestur í þætti Oprah á sínum tíma.

Elli Egilsson var einn meðlima hljómsveitarinnar Steed Lord, en í dag reka þau saman verslunina MONO ásamt því að María á verslunina Maníu. Þau eru samt sem áður búsett vestanhafs. 

Elli Egilsson ákvað að djóka aðeins í mér og sendi e-mail á Dr. Phil... Sagði honum víst að ég væri mega fan og það að...

Posted by Maria Birta on 24. ágúst 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×