Hópfjármögnun til hjálpar héraði í Sýrlandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. ágúst 2015 11:26 Konur taka virkan þátt í herliði Rojava. Vísir/EPA
Undanfarin þrjú ár hefur Sýrland verið rifið í sundur vegna stríðsátaka þar í landi. Uppgangur ISIS innan Sýrlands og sá hrottagangur sem ISIS fylgir veldur mönnum miklum áhyggjum en það er vin í eyðimörkinni. Rojava er hérað við landamæri Tyrklands og Sýrlands og þar hefur mönnum tekist að skapa tiltölulega lýðræðislegt og friðsælt samfélag. Það er bara einn galli, rafmagnsleysi, en því á að bjarga með hópfjármögnun.Rafmagn héraðsins kemur frá rafölum en þeir liggja undir skemmdum, bæði vegna árása frá ISIS en einnig vegna þess að erfitt reynist að koma varahlutum inn í héraðið. Sænskir velunnarar Rojava hafa því hafið herferð til að hópfjármagna varahluti í rafalana sem framleiða rafmagn fyrir um 800 heimili. Nú þegar 12 dagar eru eftir af herferðinni hafa safnast um 18.000 dollarar af þeim 23.000 sem er markmið söfnunarinnar. Í Rojava búa um fjórar milljónir og tókst herafla þeirra að hrekja burt herlið Assad Sýrlandsforseta árið 2011, auk þess sem að herliðið hefur haldið ISIS í skefjum. Daglegt líf í héraðinu er friðsælt og stjórnarskrá héraðins tryggir það að sýslur þess verði að kjósa einn fulltrúa Kúrda, einn fulltrúa Araba og einn fulltrúa Kristna í þriggja manna stjórn sýslanna og einn fulltrúanna verður að vera kona.
Mið-Austurlönd Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira