Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 30-31 | Svekkjandi tap gegn Slóvenum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron Pálsson í leiknum  í dag
Aron Pálsson í leiknum í dag Vísir/Facebook-síða mótsins
Ísland tapaði sínum fyrsta leik á heimsmeistaramóti U19 í handbolta í dag í 31-30 tapi gegn Slóveníu í undanúrslitunum. Slóvenska liðið sneri taflinu við á seinustu tíu mínútum leiksins eftir að íslensku strákarnir höfðu leitt í leiknum fram að því.

Líkt og íslenska liðið var það slóvenska ósigrað fyrir leik dagsins. Slóvenar unnu fjóra leiki og gerðu eitt jafntefli í riðlakeppninni gegn Frakklandi og lögðu Króatíu og Noreg í útsláttarkeppninni.

Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 4-0 eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Neyddist þjálfari slóvenska liðsins til þess að taka leikhlé en íslenska liðið hélt leiknum í höndum sér í fyrri hálfleik.

Voru hraðaupphlaupin að virka eins og í sögu og varnarleikurinn hélt vel fyrir framan Grétar Atla í íslenska markinu. Tókst íslenska liðinu fyrir vikið að halda öruggu forskoti allan fyrri hálfleikinn og leiddi í hálfelik 15-11.

Það var allt annað að sjá til liðanna í seinni hálfleik en slóvenska liðið komst upp á lagið í sóknarleik sínum um leið og sóknarleikur íslenska liðsins varð stirðari.

Smátt og smátt söxuðu Slóvenar á forskot íslenska liðsins og náðu að jafna metin í fyrsta sinn í leiknum þegar fjórar mínútur voru til leiksloka.

Virtust íslensku strákarnir einfaldlega rotaðir á fimm mínútna kafla sem slóvenska liði hafði betur 5-1 og náði tveggja marka forskoti þegar tvær og hálf mínúta voru eftir.

Strákunum okkar tókst að minnka muninn í tvígang en alltaf náðu leikmenn slóvenska liðsins að svara með mörkum og gafst einfaldlega ekki tími til þess að jafna metin.



Munu Strákarnir okkar því leika upp á bronsið á morgun gegn Spánverjum eða Frökkum en þeir voru grátlega nálægt því að komast í úrslitin. Vantaði herslumuninn í varnarleik liðsins í seinni hálfleik þegar uppi er staðið.

Hákon Styrmisson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með sjö mörk en skyttan Egill Magnússon bætti við öðrum sex. Í markinu varði Grétar Ari Guðjónsson 15 skot af 45, alls 33,3% markvarsla.

Textalýsingu frá leiknum má lesa hér fyrir neðan.



60:00
Þetta var grátlegt! Töpum með eins marks mun. Slóvenar brjóta sér leið í gegnum miðja vörn Íslands og koma muninum aftur upp í tvö mörk þegar hálf mínúta er til leiksloka. Íslenska liðið nær að minnka muninn á ný en nær ekki að stela boltanum á þeim tíu sekúndum sem voru til leiksloka. Ísland 30-31 Slóvenía.

59:00
Íslenska liðið minnkar muninn en Slóvenar bæta við öðru eftir langa sókn. Egill minnkar aftur muninn, ein mínúta eftir.

57:30
Tapaður bolti og slóvenska liðið heldur í sókn. Egill Magnússon liggur eftir en hann fékk höfuðhögg við að taka frákast af skoti slóvenska liðsins.

57:00
29-27 fyrir Slóveníu og Einar tekur leikhlé. Það er enn nægur tími en íslenska vörnin þarf að fara að vakna til lífsins. Slóvenar búnir að setja átján mörk hérna í seinni.

56:00
Útsendingin ekki upp á sitt besta rétt eins og íslenska liðið. Slóvenska liðið komið yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar fjórar mínútur eru eftir. Koma svo strákar!! Ísland 27-28 Slóvenía.

53:30
Slóvenar að jafna metin í fyrsta sinn í leiknum. Ísland búið að leiða frá fyrstu mínútu. Ísland 26-26 Slóvenía.



52:00
Þvílík mínúta. Töpum boltanum en Grétar bjargar íslenska liðinu gegn hraðaupphlaupi. Íslenska liðið svarar með hraðaupphlaupi og munurinn kominn í tvö. Ísland 26-24 Slóvenía.

51.00
Munurinn kominn í eitt mark og Einar tekur leikhlé. Ísland 25-24 Slóvenía.

50:00
Tíu mínútur eftir. Gegn Noregi og Brasilíu keyrðu íslensku strákarnir yfir andstæðinga sína á lokamínútunum.

49:00
Úff. Hákon fékk dauðafæri til þess að koma muninum aftur upp í fjögur mörk. Galopinn í horninu en markmaðurinn ver glæsilega og Slóvenar svara með marki. Munurinn aftur í tvö mörk. Ísland 25-23 Slóvenía.

47:00
Munurinn kominn aftur niður í tvö mörk. Ísland manni fleiri næstu tvær mínúturnar.

45:00
Erum í smá vandræðum með beinu útsendinguna, höktir töluvert en við reynum að uppfæra hér eins og við getum.

41:00
Jæja loksins kemur markvarsla. Erum manni fleiri og náum aftur þriggja marka forskoti. Höfum hleypt löndum nálægt okkur áður á mótinu en alltaf keyrt á mótherjana á lokamínútum leiksins. Ísland 21-18 Slóvenía.

40:00
Úff. Munurinn kominn niður í eitt mark. Koma svo strákar!

39:00
Strákarnir þurfa að vakna í varnarleiknum. Slóvenar komnir með sex mörk eftir níu mínútur. Ísland 19-17 Slóvenía.

37:00
Jæja þá erum við mætt af stað á ný. Slóvenska liðið er búið að minnka muninn niður í tvö mörk. Ísland 18-16 Slóvenía.

30:00
Hálfleikur í Rússlandi og íslenska liðið leiðir með 4 mörkum. Frábær varnarleikur hefur skilað sér í fjölda hraðaupphlaupa hér í fyrri hálfleik og fyrir aftan vörnina hefur Grétar staðið sig vel. Vonandi ná strákarnir að halda þessu áfram í seinni. Ísland 15-11 Slóvenía.

29:00
Óðinn nær að skjótast á milli markmanns og varnarmanns til þess að ná sendingu Grétars og setur boltann í autt netið. Ísland 15-10 Slóvenía.

26:00
Grétar með enn eina markvörsluna. Hefur farið vel af stað í þessum leik og íslenska liðið bætir við marki af línunni. Munurinn kominn aftur upp í fjögur mörk, Ísland 13-9 Slóvenía.

25:00
Það var laglegt. Styrmir stelur boltanum og kemst í hraðaupphlaup. Ísland 11-8 Slóvenía.

24:30
Slóvensk skytta með þrumufleyg beint í andlitið á Grétari sem virðist hálf vankaður fyrstu sekúndurnar en ætlar að halda leik áfram.

24:00
Glæsilegt. Náum að stöðva blæðinguna, Ómar Magnússon með langskot niðri í hornið. Ísland 10-8 Slóvenía.

22:00
Vörn Slóvenana komin af stað. Tveir tapaðir boltar og Slóvenar svara með tveimur mörkum. Þá verður íslenska liðið manni færri næstu tvær mínúturnar. Ísland 9-7 Slóvenía

20:00
Einar Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, tekur leikhlé. Segir strákunum að róa sig örlítið í sóknarleiknum en hann getur ekki kvartað undan varnarleiknum og markvörslu hingað til.

19:00
Munurinn fjögur mörk þegar ellefu mínútur eru til hálfleiks. Grétar Atli er kominn af stað og ver hvert skotið á fætur öðrum. Ísland 9-5 Slóvenía.

17:00
Enn eitt hraðaupphlaupsmarkið hjá íslenska liðinu og Grétar fylgir því með frábærri markvörslu.

15:00
Varnarleikurinn og markvarslan til fyrirmyndar í upphafi leiks.  Slóvenar aðeins búnir að setja fjögur mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Ísland 7-4 Slóvenía.

12:00
Tapaður bolti hjá slóvenska liðinu og að vanda er Óðinn mættur í hraðaupphlaup. Hann einfaldlega klúðrar ekki svona færum. Ísland 7-4 Slóvenía.

10:00
Tvö varin skot í röð hjá Grétari. Það væri frábært ef hann færi í gang hérna. Svo kemur þriðja skotið í röð strax í næstu sókn. Meira af þessu takk fyrir!

08:00
Strákarnir að spila fasta vörn sem slóvenska liðið á í vandræðum með. Reyna erfitt skot og Grétar Atli tekur sinn fyrsta bolta í markinu. Ísland 6-3 Slóvenía.

06:00
Jæja þá tekst slóvenska liðinu að komast á blað en íslenska liðinu tekst að svara með marki úr opnum leik. Egill fer vel af stað þrátt fyrir að vera með gat á hausnum. Slóvenar svara með tveimur mörkum. Ísland 5-3 Slóvenía

04:00
Þjálfari tekur Slóveníu tekur leikhlé enda íslenska liðið að keyra yfir Slóvenana í upphafi leiks. Frábær byrjun. Ísland 4-0 Slóvenía.

03:30
Egill Magnússon fékk gat á hausinn í gær og er vel vafinn inn. Kemur ekki að sök, hann stelur boltanum og íslensku strákarnir keyra í þriðja hraðaupphlaupið! Þvílík byrjun hjá íslensku strákunum. Óðinn með tvö, Hákon með eitt og Egill með eitt.

02:00
Glæsileg byrjun. Vörnin byrjar af krafti, hávörnin tekur fyrsta boltann og stolinn bolti strax í kjölfari þess. Fáum tvö hraðaupphlaup í kjölfari þess. Ísland 2-0 Slóvenía.

01:00
Þá erum við farin af stað. Strákarnir eru  í hvítu búningunum og halda í sókn. Fá tvö góð tækifæri í fyrstu sókn en markmaður slóvenska liðsins ver vel.

Fyrir leik:
Strákarnir taka vel undir þjóðsönginn, alvöru menn!

Fyrir leik:
Dómaraparið í dag kemur frá Argentínu.

Fyrir leik:
Jæja þá er beina útsendingin komin aftur á stað. Hálftími í leik.

Fyrir leik:
Íslenski fáninn í stúkunni. Þjálfari liðsins sagði mér að þetta væri afi Arnars og að hann hefði litið við í skoðunarferðir með liðinu. Alvöru maður sem ferðast alla leiðina með liðinu og sendum við okkar bestu kveðjur til hans.

Fyrir leik:
Danmörk og Svíþjóð voru að ljúka leik og nú koma strákarnir okkar út á gólfið í upphitun. Menn hita upp með því að halda bolta á lofti.

Fyrir leik:
Óðinn Ríkharðsson hefur vakið verðskuldaða athygli á mótinu en hann er markahæstur þrátt fyrir að vera ekki vítaskytta íslenska liðsins. Hefur hann verið eins og elding í hraðaupphlaupum liðsins.

Fyrir leik:
Þetta er í annað sinn sem Einar kemst í undanúrslit með lið sitt en árið 2009 komst íslenska liðið í undanúrslit. Voru Aron Pálmarsson og Ólafur Guðmundsson valdir í úrvalsliðið á því móti.

Fyrir leik:
Einar Guðmundsson, þjálfari liðsins, fór fögrum orðum um liðið í samtali við Fréttablaðið í gær en hann sagði strákana sína einstaklega vel gefna og að það væri sannkallaður draumur að þjálfa þá.

Fyrir leik:
Jæja góðan daginn. Það er sannkallaður stórleikur framundan hjá íslenska liðinu sem kemst í úrslitaleikinn með sigri á Slóveníu.


Tengdar fréttir

Slóvenar mótherjar Íslands í undanúrslitunum

Íslenska liðið mætir því slóvenska í undanúrslitum á HM U19 árs í handknattleik á fimmtudaginn en þetta varð ljóst eftir sigur Slóvena á Noregi rétt í þessu.

Framkvæma allt sem ég segi

Þjálfari U-19 ára landsliðsins í handbolta segist vera stoltur af strákunum sem hafa slegið í gegn í Rússlandi. Hann segir sína menn tilbúna til þess að taka að sér stór hlutverk hjá íslenska landsliðinu í framtíðinni.

Grétari Ara hrósað af handboltagoðsögn

Andrey Lavrov, fyrrum markvörður í rússneska landsliðinu, segir að Grétar Ari Guðjónsson sé einn þriggja markavarða sem hafi hrifið sig á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Sigur á Suður-Kóreu og átta liða úrslitin framundan

Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum nítján ára og yngri er komið í átta liða úrslitin á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Rússlandi eftir sex marka sigur, 34-28, á Suður-Kóreu.

Einar Andri: Árangurinn samspil margra þátta

Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla, segir að ef allt smellur hjá U19-ára landsilðinu í handbolta gæti liðið farið alla leið í úrslit á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×