Lífið

Ný þekjumynd: Vin Diesel þreytist ekki á myndinni af sér og Ólafi Darra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tveir flottir saman á Facebook.
Tveir flottir saman á Facebook.
Ólafur Darri Ólafsson er mættur á Fésbókarsíðu Vin Diesel. Bandaríski leikarinn, eða sá sem sér um síðuna fyrir hans hönd, skipti um þekjumynd í kvöld og er okkar maður mættur við hlið Vin Diesel.

Ólafur Darri og Vin Diesel leika sem kunnugt er saman í kvikmyndinni The Last Witch Hunter sem frumsýnd verður í Bandaríkjunum í október. Auk þeirra tveggja fara Elijah Wood og Michael Caine einnig með hlutverk í myndinni. Persóna Ólafs Darra heitir Belial. Leikstjóri myndarinnar er Breck Eisner

Um 150 þúsund manns hafa líkað við nýju þekjumyndina en Vin Diesel á 94 milljón fylgjendur á Facebook. Hann er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt í Fast & Furious myndunum. Nútíminn vakti fyrst athygli á uppfærslunni hjá Vin Diesel.

Stiklu úr The Last Witch Hunter má sjá hér að neðan.



„Mér finnst ég hafa verið heppinn; oft verið réttur maður á réttum stað einhvern veginn. Bæði í kvikmyndum og í leikhúsi. Ég hef fengið að vinna með fólki sem ég hef lengi vel litið upp til og er þakklátur fyrir það,“ sagði Ólafur í viðtali við Fréttablaðið fyrr á árinu.

Þetta er reyndar í annað skiptið sem Vin Diesel birtir mynd af þeim Ólafi Darra saman. Hann birti sömu mynd á Facebook-síðu sinni í október í fyrra og skrifaði þá við myndina:

„Ein af tökustað í þessari viku með vini mínum Darra.“

Bætti hann við hve innblásinn hann væri af því að vinna með svo frábærum leikurum.

Uppfært klukkan 00:12

Vin Diesel hefur aftur skipt um þekjumynd og því engan Ólaf Darra að finna þar lengur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×