Heilsa

Auktu brjóstamjólkina

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Brjóstagjöf getur verið krefjandi ferli sem er bæði líkamlega og andlega erfitt og reynist sumum mæðrum mjög erfitt, sérstaklega ef barnið virðist ekki nærast nóg og/eða ef  framleiðslan er of lítil.

Móðir þarf að hugsa vel um sig þegar hún er með barn á brjósti og er gott að hafa í huga að:

- Koma sér vel fyrir, barn fær að drekka ansi reglulega yfir daginn og því er vissara að koma sér fyrir í þægilega stellingu og jafnvel nota púða undir handleggina svo ekki komi vöðvabólga

- Borða hollan mat og nóg af honum, brjóstagjöf er orkufrek og því þarf móðirin að passa að nærast

- Drekka vel af vökva, gott er að miða við að hafa alltaf vatn við höndina og að fá sér vatnsglas fyrir gjöf og eftir

- Hvíla sig, þó það kunni að hljóma óraunhæft að ætla hvíla sig með ungabarn þá getur verið gott að bæði leggja sig með barninu eða jafnvel bara liggja aðeins útaf og njóta að hvíla líkamann þó þú sofnir ekki

- Takmarka koffein, sérstaklega ef þér finnst það hafa áhrif á svefn barnsins

- Lesa aftan á öll lyf, sumum lyf geta skilað sér útí mjólkina og því er vissara að

Vísir/Getty
Brjóstamjólk getur farið eftir lögmálunum framboð og eftirspurn, því meira sem barnið er lagt á, því meira eykst framleiðslan. 

Þetta er þó langt í frá heilagt því ýmislegt líkt og stíflur í brjósti, sýkingar, hvernig barnið tekur brjósti og síðast en ekki síst, streita.

Streita getur hindrað að mjólkin streymi framm í brjóstin og langvarandi streita getur jafnvel þurrkað upp mjólkina. 

Ef brjóstagjöf gengur brösulega þá getur það verið streituvaldandi sem svo gerir brjóstagjöfina enn erfiðari og þar með er komin vítahringur sem getur verið erfitt að losna úr.

Þá er talið að matur sem inniheldur kanil, hafrar, kókosmjólk og sesam-, graskers og sólblómafræ sé góður fyrir mjólkina og geti aukið framleiðsluna.

Einnig getur verið gott að drekkate með fennel og brenninetlu og sumir mæla með Malti og Pilsner.

Ef þú glímir við erfiðleika tengdri brjóstagjöf er um að gera að leita til sérfræðinga.


Tengdar fréttir

Brjóstagjöf og gáfnafar

Nýlega var greint frá brasilískri rannsókn sem benti til að ungbörn sem eru á brjósti fyrstu mánuði ævinnar mælist með hærri greindarvísitölu á fullorðinsárum. Þetta kemur ekki á óvart. Það er löngu vitað að brjóstamjólk er ákjósanlegasta næring fyrir ungbarn

Fæðingarpartí?

Hver á að vera viðstaddur fæðingu barns? Er þetta partí sem fólk má eiga von á að vera boðið í eða gera jafnvel sumir kröfu um að vera með?

Brjóstamjólkin gerir gæfumuninn

Langtíma rannsókn sem gerð var í Brasilíu bendir til þess að tengsl séu á milli gáfnafars og hvort viðkomandi hafi fengið brjóstamjólk í bernsku. Fylgst var með afkomu 3500 barna af öllum stéttum í landinu og í ljó kom að þeir sem voru lengur á brjósti en meðaltalið mældust að jafnaði hærri í greindarprófum þegar komið var á fullorðinsár.

Hreyfing á meðgöngu

Sú mýta hefur verið öðrum yfirsterkari að óléttar konur eigi alls ekki að hreyfa sig en nú er öldin önnur.

Kynferðisleg brjóstagjöf

Sumir fullorðnir karlmenn æsast kynferðislega við brjóstagjöf og vilja vera á brjósti og drekka brjóstamjólk.

Fjörið eftir fæðinguna

Nú er meðgöngunni lokið og barnið komið í heiminn svo við tekur gleði og hamingja...eða hvað?

Bjóða upp á ís úr brjóstamjólk mæðra frá Hveragerði

„Já, þetta er ís unnin úr brjóstamjólk. Þetta er bara venjulegur ís, nema í staðinn fyrir að mjólkin komi úr kú kemur hún úr kvenmanni," segir Guðrún Hafsteinsdóttir, forstjóri Kjöríss. Ísinn úr brjóstamjólkinni ber heitið Búbís.

Fæðingarsögur

Fæðingar geta verið allskonar og því getur verið gaman að renna í gegnum fæðingarreynslu nokkurra kvenna og eins föðurs

Tími á milli barneigna

Þegar barn er fætt fer af stað klukka og nú velta margir foreldrar því fyrir sér hvort eiga skuli fleiri börn og þá hvenær.

Fengu að smakka ís úr mjólk mæðra í Hveragerði

Fjórar mæður úr Hveragerði lögðu Kjörís til Brjóstamjólk svo hægt væri að framleiða brjóstamjólkurísinn Búbís. Ísland í dag fór í Hveragerði, fylgdist með framleiðslunni og fékk að smakka.








×