Heilsa

Fæðingarpartí?

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Fæðing getur verið innilegt ferli en einnig hápólitískt og gestalistinn getur verið stærri en margir ætla sér.

Það að dreyma fæðingu er fyrir góðu en þó þig dreymi fæðingu náins vinar eða ættingja þá er ekki þar með sagt að þú eigir að vera viðstödd/-ur.

Einn bandarískur pistlahöfundur er ekki par sáttur um að hinir og þessir ættingjar ætlast til að vera boðið í fæðinguna og má lesa upplifun hennar hér. Hún kemur með góða punkta um hvað sé viðeigandi og hvað ekki og fyrir hvern raunverulega fæðingin er.

Vissulega er þetta persónuleg reynsla sem hver og einn verður að ákveða fyrir sig hvern sé best að hafa viðstaddan en heitar umræður sköpuðumst einmitt um það á spjalli Barnalands, Bland, fyrir nokkru. Þar var rætt um hvort barnsfaðir mætti verða viðstaddur eða ekki og ein mælti með því að vera bara með ljósmóðurinni. Öðrum fannst koma til greina að hafa yngri eða eldri systkini, móður og/eða tengdamóður og jafnvel besta vin eða vinkonu.

Eitt er víst og það er að það er ekkert eitt rétt í þessum málum og best er að fylgja eigin sannfæringu og umkringja þig þeim sem þér líður best með og virða þínar óskir og val.

Fæðingarfélagi er ekki bundin við maka eða DNA tengingu og gott er að hafa það í huga.

Sumar konur eru háværar í fæðingu og kann þeim að þykja óþægilegt ef einhver ákveðin aðili sæi sig í slíkri aðstöðu nú eða bara sæi sig jafn berskjaldaða og líkaminn og manneskja raun er í fæðingu barns.

Til að gefa þér betri ramma um þetta þá getur verið gaman að horfa á bresku fæðingarþættina One born every minute og lesa fæðingarsögur.


Tengdar fréttir

Fjörið eftir fæðinguna

Nú er meðgöngunni lokið og barnið komið í heiminn svo við tekur gleði og hamingja...eða hvað?

Fæðingarsögur

Fæðingar geta verið allskonar og því getur verið gaman að renna í gegnum fæðingarreynslu nokkurra kvenna og eins föðurs

Nokkrum númerum of stór og stokkbólgin

Fyrir ári síðan lá ég uppi á fæðingardeild með lítinn nýfæddan dreng við hlið mér. Mér leið eins og hann væri Móses sem klauf Rauða hafið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×