Illugi svarar ekki fjölmiðlum en minnir á mikilvægi þeirra Aðalsteinn Kjartansson skrifar 13. maí 2015 14:28 Illugi hefur ekki svarað margítrekuðum fyrirspurnum fjölmiðla síðustu vikur. Vísir/Daníel
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, tók þátt í umræðum ásamt kollegum sínum frá hinum Norðurlöndunum um mikilvægi fjölmiðla í almannaþágu í Færeyjum í dag. Þar ræddu þeir mikilvægi fjölmiðla til að styrkja lýðræðislega umræðu. Illugi ásamt kollegum sínum.Mynd/Mennta- og menningarmálaráðuneytið „Í niðurstöðum umræðnanna, sem ráðherrarnir sendu frá sér, segir m.a. að þeir leggi áherslu á mikilvægi þess að norrænir fjölmiðlar í almannaþágu í stafrænni framtíð, skuli áfram gegna mikilvægu hlutverki við að stuðla að og styrkja lýðræðislega umræðu í samfélögunum,“ segir um umræðurnar á vef ráðuneytisins. Sjálfur hefur Illugi og pólitískur aðstoðarmaður hans Sigríður Hallgrímsdóttir sætt gagnrýni fyrir samskipti sín við íslenska fjölmiðla. Fréttamenn RÚV gagnrýndu til að mynda nýverið aðstoðarmann ráðherra fyrir óeðlileg ummæli í samskiptum við fréttastofuna.Stundin fjallaði um það í gær að Illugi hefði ekki svarað sex fyrirspurnum fjölmiðilsins vegna Orku Energy og laxveiðiferðar sem greint hefur verið frá að ráðherrann hafi tekið þátt í á sama tíma og stjórnendur fyrirtækisins. Þá hefur fréttastofa Vísis sent aðstoðarmanni ráðherrans margítrekaðar beiðnir um viðtal vegna viðskipta Illuga við og með OG Capital, Hauk Harðarson og Orku Energy. Þeim fyrirspurnum hefur ekki verið svarað.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Sjá meira