Bíó og sjónvarp

Aðdáendur reiðir yfir nauðgunaratriði í Game of Thrones

Samúel Karl Ólason skrifar
Sophie Turner í hlutverki Sönsu Stark og George R. R. Martin.
Sophie Turner í hlutverki Sönsu Stark og George R. R. Martin. Vísir/AFP
Varúð, ef þú ert ekki búinn að sjá sjötta þátt nýjustu seríunnar af Game of Thrones sem sýndur var á Stöð 2 í gær, mun þessi grein spilla fyrir þér.



Aðdáendur bæði Game of Thrones þáttanna og bókaseríunnar A Song of Ice and Fire virðast vera í uppnámi vegna endis síðasta þáttar sjónvarpsseríunnar. Þar nauðgaði Ramsay Bolton Sönsu Stark eftir brúðkaup þeirra og neyddi hann Theon Greyjoy til að horfa á.

Brúðkaupið hefur verið titlað The Black Wedding.

Margir hinna reiðu segja Sönsu hafa þolað nóg í þáttunum. Fyrst var hún trúlofuð prinsinum Joffrey, sem lét taka föður hennar af lífi og beitti hana ofbeldi. Svo var hún látin giftast Tyrion Lannister, sem var þó hinn almennilegasti við hana. Hún hefur þó verið í ótta um líf sitt frá því í fyrstu seríu þáttanna.

Aðdáendur bókanna virðast þó vera reiðari en aðrir og kvarta yfir því að söguþráðurinn varðandi Sönsu hafi breyst of mikið á milli bókanna annars vegar og þáttanna hins vegar.

Á bloggsíðu sinni skrifar George R. R. Martin, höfundur A Song of Ice and Fire, að hann hafi fengið fjöldann allan af tölvupóstum og athugasemdum á síðunni sinni vegna atriðisins. Hann segir framleiðendur þáttanna hafa leyfi til að breyta sögunni úr bókunum.

Tvær mismunandi frásagnir af sömu sögu

„Hve mörg börn átti Scarlett O´Hara? Þrjú, í bókinni. Eitt, í kvikmyndinni. Ekkert, í alvörunni. Hún var skáldaður karakter, hún var aldrei til. Þættirnir eru þættirnir og bækurnar eru bækurnar: Tvær mismunandi frásagnir af sömu sögu.“

Hann segir að allt frá fyrsta þætti hafi verið munur á milli bókanna og þáttanna. Smávægilegar breytingar hafi leitt til stærri breytinga. Heimur Martin er gífurlega flókinn og í bókunum er sagt frá honum úr mismunandi sjónarhornum.

„Það er sjaldgæft að sjónvarpsseríur fylgi frumefni sínu svo náið eftir. Ef þið efið það, talið við aðdáendur Harry Dresden eða þá sem lásu bækurnar um Sookie Stackhouse, eða aðdáendur Walking Dead teiknimyndabókanna.“

Hann segir að því lengur sem þættirnir eru í sýningu því umfangsmeiri verði breytingarnar

„David, Dan, Bryan og HBO eru að gera eins góða þætti og þeir geta. Á meðan er ég að reyna að skrifa eins góðar bækur og ég get. Það er satt að breytingarnar verða meiri og meiri. En við ætlum okkur að koma að sama stað að lokum.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×