Heilsa

Hlaupahátíð Ármenninga í Laugardalnum

Elísabet Margeirsdóttir skrifar
Sigurvegarar í karlaflokki, Guðni, Sæmundur og Guðni Páll
Sigurvegarar í karlaflokki, Guðni, Sæmundur og Guðni Páll Vísir/Bjarni Már Ólafsson
Ármenningar stóðu fyrir mikilli hlaupahátíð í Laugardalnum í dag og hófs dagurinn með fjölmennu fjölskylduhlaupi í samstarfi við garðyrkjubændur. Hlaupið hófst við þvottalaugarnar og hlupu börn og fullorðnir saman um stíga og brekkur dalsins. Síðar um daginn kepptu margir af bestu hlaupurum landsins á sömu braut í Víðavangshlaupi Ármanns.
 
Arnar Pétursson ÍR sigraði með yfirburðum í karlaflokki og í kvennaflokki sigraði María Birgisdótti, efnileg hlaupastúlka úr ÍR. Aníta Hinriksdóttir, ÍR keppti í dag í flokki 18-19 ára og sigraði hlaupið. ÍR náði náðu bestum árangri félaga og unnu þrefalt í karla- og kvennaflokki. 
 
Í tilkynningu frá Ármanni kemur fram að Frjálsíþróttasamband Ísland hafi farið vel yfir sín mál eftir mikla umræðu að loknu Víðavangshlaupi ÍR. Því hafi Þorsteinn Þorsteinsson verið skipaður yfirdómari mótsins í dag til að aðgæta að allt færi fram samkvæmt ströngustu reglum. Ármenningar merktu brautir vel, höfðu útbúið sérstaka borða til að tryggja að hvergi væri vafi á hvert brautin lægi og brautarverðir úr Hlaupahópi Ármanns stóðu vaktina og gættu vel allra horna.
 
Helstu úrslit dagins: 
Karlar 7,5 km
1. sæti: Arnar Pétursson, ÍR
2. sæti: Sæmundur Ólafsson, ÍR
3. sæti: Guðni Páll Pálsson, ÍR
 
Konur 7,5 km
1. sæti: María Birkisdóttir, ÍR 
2. sæti: Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR
3. sæti: Eva Skarpaas Einarsdóttir, ÍR
 
Stúlkur 18-19 ára: Aníta Hinriksdótti, ÍR
Piltar 18-19 ára: Jóhann Ingi Harðarson, ÍR
 
Stúlkur 15-17 ára: Andrea Kolbeinsdóttir, ÍR
Piltar 15-17 ára: Daði Arnarson, Fjölni
 
Stúlkur 13-14 ára: Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR
Piltar 13-14 ára: Ólíver Dór Örvarsson, Ármanni
 
Stúlkur 12 ára og yngri: Þórey Kjartansdóttir, Ármanni
Piltar 12 ára og yngri: Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson, UMFL
 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×