Stólarnir hafa steinlegið í fjórum af fimm leikjum sínum í lokaúrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2015 11:00 Svavar Atli Birgisson í baráttunni við KR-inginn Brynjar Þór Björnsson í leiknum í gær. Vísir/Valli
Tindastóll byrjaði ekki vel í úrslitaeinvíginu á móti KR þegar liðið tapaði með tuttugu stigum á móti Íslandsmeisturunum í DHL-höllinni í gærkvöldi. Stólarnir voru þarna að spila sinn fyrsta leik í lokaúrslitum í fjórtán ár en urðu enn á ný að sætta sig við stórtap í úrslitaeinvíginu. KR var komið með tuttugu stiga forskot í hálfleik, 51-31, eftir að hafa unnið annan leikhlutann 29-12 og náði mest 31 stigs forystu í leiknum um miðjan fjórða leikhlutann. Nú er svo komið að Stólarnir eru búnir að tapa 80 prósent leikja sinna í lokaúrslitum með tuttugu stigum eða meira. Tapið í gær var nefnilega fjórði skellur liðsins í fimm leikjum því liðið tapaði þrisvar sinnum stórt fyrir Njarðvíkingum í úrslitaeinvíginu fyrir fjórtán árum síðan. Hér fyrir neðan má sjá alla leiki Tindastóls í lokaúrslitunum en næsti leikur fer fram á Sauðárkróki á fimmtudagskvöldið. Þar reyna Stólarnir að jafna metin og vinna jafnframt sinn fyrsta leik í Síkinu í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn.Leikir Tindastóls í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta:Lokaúrslit 2001 Leikur 1: 24 stiga tap fyrir Njarðvík í Njarðvík (89-65) Leikur 2: 21 stigs tap fyrir Njarðvík á Sauðárkróki (100-79)Leikur 3: 3 stiga sigur á Njarðvík í Njarðvík (96-93) Leikur 4: 25 stiga tap fyrir Njarðvík á Sauðárkróki (96-71)Lokaúrslit 2015 Leikur 1: 20 stiga tap fyrir KR í KR-húsinu (94-74)
Dominos-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Fótbolti Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Í beinni: KA - Valur | Pedersen nálgast markametið Íslenski boltinn Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Fótbolti Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira