39 ára bið Golden State á enda | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. mars 2015 07:00 Andre Iguodala átti góðan leik í nótt. Vísir/AP
Golden State Warriors tryggði sér í nótt sigur í Kyrrahafsriðlinum í fyrsta sinn síðan 1976 er liðið hafði betur gegn Portland á útivelli, 122-108. Golden State er með bestan árangur allra liða í NBA-delidinni en liðið hefur unnið 58 leiki í vetur og er með væna forystu á næsta lið í riðlinum, LA Clippers, sem hefur unnið 46. Steph Curry var með 33 stig og tíu stoðsendingar í leiknum í nótt og Andre Iguodala kom af bekknum og skoraði 21 stig. Þetta var sjöundi sigur liðsins í röð. Portland er í fjórða sæti vesturdeildarinnar en hefur nú tapað fimm leikjum í röð. Oklahoma City styrkti stöðu sína í áttunda sæti vesturdeildarinnar með sigri á LA Lakers, 127-117. Russel Westbrook, stigahæsti maður deildarinnar, skoraði 27 stig og bætti við ellefu stoðsendingum. Enes Kanter var með 25 stig og sextán fráköst. Dallas vann San Antonio, 101-94, og minnkaði þar með bilið á milli liðanna í sjötta og sjöunda sæti vesturdeildarinnar. Monta Ellis skoraði 38 stig fyrir Dallas. Þá vann Milwaukee sigur á Miami, 89-88, í baráttunni um sjötta sæti austurdeildarinnar. Milwaukee er nú með 35 sigra en Miami enn með 32. Khris Middleton tryggði Milwaukee sigurinn með þriggja stiga flautukörfu en lið hans var búið að tapa fimm leikjum í röð fyrir leikinn í nótt.Úrslit næturinnar: Detroit - Toronto 108-104 Milwaukee - Miami 89-88 Oklahoma City - LA Lakers 127-117 Dallas - San Antonio 101-94 Sacramento - Philadelphia 107-106 Portland - Golden State 108-122
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira