Formúla 1

Renault: Red Bull lýgur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Abiteboul og Horner ræða málin.
Abiteboul og Horner ræða málin. Vísir/Getty
Sambandið sem skilaði fjórum heimsmeistaratitlum í röð virðist nú leika á reiðiskjálfi.

Eftir erfitt tímabil í fyrra virðist Red Bull ekki ganga neitt betur í ár. Þvert á móti virðist liðið hafa dregist aftur úr hestu keppinautum sínum. Ferrari og Williams fengu alveg frið frá Red Bull í Ástralíu.

Red Bull hefur sagt að Renault sé nánast alfarið um að kenna. Renault, sem skaffar liðinu vélar vill hins vegar meina að Red Bull eigi stóran þátt í eigin óförum.

Helmut Marko, sérstakur ráðgjafi Red Bull liðsins hefur sagt það koma til greina að skoða aðra mögulega vélaframleiðendur ef Renault fer ekki að koma með vél sem getur ógnað Mercedes.

Alain Prost, fyrrum heimsmeistari ökumanna og sérstakur sendiherra Renault tók undir kröfur Red Bull um bætingar og sagði „jafnvel þótt þú þurfir stundum að sætta þig við að tapa hugsanlega þá er það bara hluti af keppni en ekki með þessum hætti.“

Christian Horner, liðsstjóri Red Bull var allt annað en sáttur með þróun vélarinnar í vetur.

„Þetta er búin að vera erfið helgi fyrir Renault. Vélin er eiginlega ekki ökuhæf. Það er hægt að sjá það og heyra í athugasemdum ökumanna. Það er ergjandi að sjá að við erum enn aftar en við vorum í Abú Dabí bæði hvað varðar afl og ökufærni vélarinnar,“ sagði Horner eftir frekar mislukkaða helgi í Ástralíu.

Newey veltir fyrir sér vandræðagangi Renault og Red Bull.Vísir/Getty
„Það er eitt að vera ekki samkeppnishæfur en sjá fram á að geta unnið þig út úr því. Það er annað þegar þú ert ekki samkeppnishæfur og samstarfsaðili þinn virðist ekki reiðubúinn að leggja sitt af mörkum. Ég hreinlega veit ekki hvers vegna svo er. Staðan virðist vera þessi,“ sagði Adrian Newey, yfirhönnuður Red Bull um Renault eftir erfiðan nýliðinn vetur.

„Það er erfitt að vera í samstarfi með aðila sem lýgur. Adrian er heillandi maður og einstakur verkfræðingur en hann hefur gagnrýnt vélaframleiðendur sína alla ævi. Hann er of gamall til að breytast,“ sagði Cyril Abiteboul frá Renault.


Tengdar fréttir

Red Bull óttast meiri yfirburði Mercedes 2015

Red Bull liðið gerir ekki ráð fyrir að eiga roð í Mercedes á næsta tímabili. Red Bull telur að yfirburðir þýska risans verði líklega meiri en í þeir voru í ár.

Getur einhver skákað Hamilton?

Tímabilið í Formúlu 1 fer af stað um helgina þegar 20 ökumenn tíu liða ræsa á Albert Park-brautinni í Ástralíu. Risastórar breytingar hafa orðið á stærstu liðunum og býst sérfræðingur Stöðvar 2 Sports við skemmtilegu tímabili. Heimsmeistarinn er áfram lík

Bílskúrinn: Mercedes á móti rest

Fyrsta keppnin á Formúlu 1 tímabilinu fór fram um nýliðna helgi. Helgin í heild sinni svaraði sumum spurningum en vakti aðrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×