Formúla 1

Bílskúrinn: Mercedes á móti rest

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes liðið er það besta í ár.
Mercedes liðið er það besta í ár. Vísir/Getty
Fyrsta keppnin á Formúlu 1 tímabilinu fór fram um nýliðna helgi. Helgin í heild sinni svaraði sumum spurningum en vakti aðrar.

Svörin við þeim helstu er að finna í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Það er langt síðan Horner baðaði sig í kampavíni, það gæti verið farið að hafa áhrif á hann.Vísir/getty
Mercedes á móti rest

Yfirburðir Mercedes liðsins virðast talsverðir. Ferrari segist þó með mikilli vinnu eiga möguleika á að stríða Mercedes. Þeir komust næst því um helgina.

Christian Horner, liðsstjóri Red Bull kallar á reglubreytingar í samræmi við þær sem gerðar voru þegar yfirburðir Red Bull voru of miklir fyrir nokkrum árum.

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins var ekki ánægður með ummæli Horner.

„Settu undir þig fjandans hausinn og legðu meira á þig,“ var haft eftir Wolff.

Red Bull virðist vera komið í vælukjóa gír. Því í gær bárust fréttir af því að liðið hótaði aftur að hætta í Formúlu 1 yrðu engar breytingar gerðar. Kröfur liðsins eru þær að reglum verði breytt í átt til jafnara vélarafls og að reglurnar verði einfaldari og opnari.

Horner segir að hótun liðsins sé ekki tilkomin vegna yfirburða Mercedes liðsins. En þessi gagnrýni hans heyrðist ekki þegar lið hans drottnaði frá 2010 til 2013. Hann er kannski með fráhvarfseinkenni frá reglulegum kampavínssturtum undanfarinna ára.

Viðtölin á verðlaunapallinum tóku óvænta stefnu þegar Nico Rosberg sagðist vona að Ferrari gæti náð Mercedes. Sebastian Vettel, ökumaður Ferrari varð hvumsa og spurði „má ég ekki bara koma í bílskúrinn til ykkar og hlusta á fundinum fyrir keppnina í Malasíu.“

Rosberg svaraði glottandi „þú ert velkominn,“ Rosberg gerði svo grín að orðaskiptunum á Twitter skömmu seinna og sendi út tilkynningu um að Vettel væri formlega boðið á fund liðsins fyrir keppnina í Malasíu og minnti landa sinn á að taka með sér glósubókina. Ætli Rosberg vilji ekki frekar að Ferrari hjálpi honum að verða heimsmeistari með því að hirða nokkur stig af Lewis Hamilton.

Graeme Lowdon, keppnisstjóri Manor.Vísir/getty
Manor ekki með en samt með

Lítið sem ekkert sást til Manor liðsis um helgina. Graeme Lowdon, liðsstjóri Manor sagði á blaðamannafundi fyrir keppnina að vandamálin væru margþætt og samverkandi.

Í stuttu máli er liðið að nota 2015 árgerð af hugbúnaði til að stýra 2014 vél frá Ferrari. Slíkt virðist ekki ganga upp.

Bernie Ecclestone, einráður Formúlu 1 segir að liðið verði látið borga flutninginn á bílum og búnaði til Ástralíu úr eigin vasa. Slík rukkun sé í refsiskyni fyrir að hafa ekki komið bílum sínum á brautina.

„Við hefðum aldrei átt að hleypa Manor upp með það sem þeir gerðu. Þetta er okkur að kenna. Ég var búinn að spá fyrir um þetta,“ sagði Ecclestone í samtali við Reuters.

„Liðið ætlaði sér aldrei að keppa í Ástralíu. Aldrei. Þeir hefðu ekki getað komið bílunum á brautina þótt einhver hefði hótað þeim með vélbyssu,“ sagði Ecclestone sem var allt annað en sáttur við hegðun liðsins.

Óljóst er hvort liðið telst hafa tekið þátt í keppnishelginni. Til þess að fá 34 milljón punda (7 milljarðar íslenskra króna) verðlaunafé vegna síðasta tímabils verður liðið að sannfæra Ecclestone um að svo sé. Annars hefur liðið misst tilkall sitt til verðlauna.

Massa segir farir Williams af viðskiptum sínum við Mercedes hugsanlega ekki sléttar.Vísir/Getty
Massa segir Mercedes svindla

Felipe Massa á Williams segist efast um heilindi Mercedes. Williams notar Mercedes vélar. Massa segist ekki viss um að vélin sem Mercedes skaffar Williams sé sú sama og Mercedes liðið notar í eigin bíla.

Eftir að Massa tryggði sér þrijða sæti í tímatökunni spaugaði hann á blaðamannafundi um þetta.

„Ef við erum með sömu vélina hlýtur bilið að vera vegna hönnunar bílsins, eða… Ég vona að við séum með sömu vélina,“ sagði Massa.

„Af hverju ætti Mercedes að hjálpa Ferrari? Við verðum að fá það besta sem þeir geta boðið og við munum vinna í að fá það,“ bætti Massa við eftir keppnina og virtist alvara með orðum sínum.

Felipe Nasr náði í 10 stig fyrir Sauber.Vísir/Getty
Sauber sundrungin

Fram að keppninni hafði helgin verið liðinu afar erfið. Giedo van der Garde hótaði að láta fangelsa Monisha Kaltenborn, liðsstjóra Sauber, fengi hann ekki að aka fyrir liðið í keppninni.

Samkomulag náðist þó og Felipe Nasr og Marcus Ericsson kepptu fyrir liðið. Þeir stóðu sig með eindæmum vel. Nasr varð fimmti og Ericsson áttundi. 14 stiga helgi er sú besta í 23 keppnishelgar.

Liðið sem náði ekki í eitt einasta stig á síðasta tímabili er skyndilega komið í þriðja sæti í keppni bílasmiða á eftir Mercedes og Ferrari. Vel gert Sauber!

Verður dökkblái Toro Rosso bíllinn orðin gulur Renault innan skamms?Vísir/Getty
Ætlar Renault að taka yfir Toro Rosso?

Helmut Marko, aðal maðurinn hjá Red Bull hefur staðfest að Renault sé hugsanlega að fara að kaupa systurliðið Toro Rosso.

„Það er satt við erum í viðræðum við Renault um breytt fyrirkomulag á samstarfi okkar sem varðar Toro Rosso. Það gæti farið svo að bílarnir verði alveg gulir og það gæti átt sér stað algjör yfirtaka,“ sagði Marko.

Renault telur sig ekki fá næga athygli með því eingöngu að skaffa vélar og telur að með því að reka eigið lið gæti athyglin aukist. Kannski hefur áðurnefndur skortur á kampavínssturtum eitthvað með það að segja að Red Bull virðist tilbúið að minnka við sig.


Tengdar fréttir

Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

McLaren á öftustu rásröð, Mercedes ósnertanlegir og Felipe Massa bestur af restinni. Hvaða ummæli féllu eftir tímatökuna í Ástralíu.

Getur einhver skákað Hamilton?

Tímabilið í Formúlu 1 fer af stað um helgina þegar 20 ökumenn tíu liða ræsa á Albert Park-brautinni í Ástralíu. Risastórar breytingar hafa orðið á stærstu liðunum og býst sérfræðingur Stöðvar 2 Sports við skemmtilegu tímabili. Heimsmeistarinn er áfram lík

Hamilton hóf titilvörnina af krafti

Lewis Hamilton á Mercedes vann fyrstu keppni tímabilsins, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Sebastian Vettel varð þriðji í sinni fyrstu keppni með Ferrari.

Hamilton: Ég verð hér aftur

Viðbrögðin við keppninni í Ástralíu. Hvað höfðu ökumenn og aðrir að segja um atburðarásina?

Manor með til Melbourne

Manor liðið hefur staðfest að 2015 bíll liðsins sé reiðubúinn og mæti í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu eftir 10 daga.

Lewis Hamilton á ráspól í Ástralíu

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir ástralska kappaksturinn, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Felipe Massa á Williams varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×