Knicks goðsögn látin Anton Ingi Leifson skrifar 1. mars 2015 09:00 Mason í eldlínunni. Vísir/Getty
Anthony Mason, körfuboltagoðsögn, sem hjálpaði New York Knicks að vinna Austurdeildina árið 1994 er látinn, einungis 48 ára að aldri. Talsmaður Knicks staðfesti þetta í samtali við ESPN að Mason hafi dáið í gær. Mason spilaði í þrettán ár í NBA, en hann greindist með hjartagalla fyrr í þessum mánuði. „Fyrst af öllu vil ég þakka öllum fyrir kveðjurnar. Fjölskyldu okkar þykir mjög vænt um það,” sagði sonur hans, Anthony Mason JR., í gær. „Borgin New York hefur misst goðsögn, vin, bróður, en meira en allt föður okkar, Anthony Mason. Ég óska þess að ég væri að skrifa eitthvað annað en þetta, en pabbi - við viljum láta þig vita að við elskum þig og vitum að þú munt alltaf vera með okkur.” Antoine, annar sonur Mason, sagði í vikunni að Mason eldri væri að verða betri eftir aðgerð sem hann gekkst undir. Áfallið dundi svo yfir í gær, en fjölskylda Mason segir að hann hafi barist eins og stríðsmaður allt til enda. Mason er þekktastur fyrir leik sinn með New York Knicks, en hann lék einnig með Charlotte Hornets, Miami Heat og Denver Nuggets til að mynda. Hann skoraði 9656 stig í NBA-boltanum, tók 7279 fráköst og gaf 2963 stoðsendingar. Margir þekktir fyrrum leikmenn og þjálfarar í NBA hafa vottað fjölskyldu og vinum Anthony virðingu sína, en þar á meðal er forseti Knicks, Phil Jackson.
NBA Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti Ísland - England | Glódís slær met í risaleik Fótbolti Vignir í dauðafæri og nýtir sér leynivopn á Íslandi Sport Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Íslenski boltinn Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Íslenski boltinn Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Sport „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Íslenski boltinn Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Hamar/Þór einum sigri frá Bónus eftir sigurkörfu á lokasekúndu KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Læknirinn yfirgefur höllina „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Tryggvi tókst á við Barcelona Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Sjá meira