Handbolti

Kretzschmar: Erum eins og Danir á EM 1992

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Þjóðverjar eru í skýjunum með frammistöðu þýska landsliðsins, sem leikur undir stjórn Dags Sigurðssonar, á EM í handbolta. Þýskaland gerði í gær jafntefli við Dani og eiga í raun sigurinn vísan í hinum geysisterka D-riðli.

Stefan Kretzschmar, sérfræðingur Sport 1 í Þýskalandi og fyrrum landsliðsmaður í handbolta, er staddur í Doha og Vísir ræddi við hann um leikinn í gær og framtíðarhorfur liðsins.

„Úrslitin hafa komið okkur öllum á óvart,“ sagði Kretzschmar en þegar Vísir ræddi við hann daginn fyrir fyrsta leik sagði hann að væntingar gagnvart þýska liðinu væru hófstilltar. Hann reiknaði ekki með sigri gegn Póllandi í fyrsta leik en það varð svo niðurstaðan.

„Ég er ekki bara ánægður með úrslitin heldur einnig frammistöðuna og hvernig liðið hefur spilað. Þetta er fallegur handbolti og án margra mistaka. Liðið virðist ná einstaklega vel saman.“

„En það er alveg ljóst að Danir spiluðu ekki sinn besta handbolta í gær. Þeir geta spilað betur. En strákarnir gerðu sitt mjög vel - börðust mikið og voru nálægt því að vinna. Það eru allir mjög ánægðir með þetta lið í Þýskalandi.“

Sjá einnig: Kretzschmar: Ísland kemst ekki í undanúrslit

Þýskaland er í efsta sæti D-riðils og mun með sigrum gegn Argentínu og Sádí-Arabíu í síðustu tveimur leikjunum tryggja sér efsta sæti riðilsins. Það lið mætir liðinu sem hafnar í fjórða sæti C-riðils en þar situr Ísland nú.

„Argentína verður erfiður andstæðingur. Það vita Danir vel og skal ekki vanmeta Argentínu. En ég reikna með að við vinnum síðasta leikinn okkar í riðlinum [gegn Sádí Arabíu] sem þýðir að við erum með öruggir með fyrsta eða annað sæti riðilsins.“

„Það var markmið okkar. Að sleppa við Frakkland og Svíþjóð í 16-liða úrslitunum. Hvað svo gerist verður maður að sjá. Hvort við vinnum riðilinn eða verðum í öðru sæti skiptir mig persónulega engu máli.“

Sjá einnig: Roggisch: Dagur kann að finna réttu orðin

Hann segir að það sé bjart framundan í þýskum handbolta. „Það sem hefur heillað mig er að í þessu liði er mikill leikskilningur og mikil hugsun. Vissulega er smá fall niður á við í gæðum leikmanna frá byrjunarliðinu á hina í hópnum en þetta er lið sem er á góðum aldri og stefnir í rétta átt. Það er afar mikilvægt.“

„En við skulum ekki gleyma því að við áttum eiginlega ekki að vera með á þessu móti,“ minnir Kretzschmar á og brosir. Þýskaland fékk eins og kunnugt er keppnisrétt eftir að Áströlum var kastað úr keppninni af IHF.

„Við erum eins og Danmörk 1992,“ bætir hann hlæjandi við en Danir urðu Evrópumeistarar í knattspyrnu eftir að hafa fengið þátttökurétt á EM í Svíþjóð með óhefðbundnum leiðum sem kunnugt er.


Tengdar fréttir

Dagur: Gaman að geta strítt Gumma

Það verður stór stund í sögu íslensks handbolta þegar tvö af stærstu handboltaveldum heims, Þýskaland og Danmörk, mætast á Heimsmeistaramótinu í handbolta í Katar í kvöld. Bæði lið eru þjálfuð af Íslendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×