Handbolti

Mikilvægur sigur hjá Patreki og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vytautas Ziura með boltann gegn Bosníu. Hann skoraði tvö mörk í leiknum.
Vytautas Ziura með boltann gegn Bosníu. Hann skoraði tvö mörk í leiknum. vísir/afp
Patrekur Jóhannesson og lærisveinar hans í austurríska handboltalandsliðinu náðu í sín fyrstu stig á HM í Katar þegar þeir lögðu Bosníu að velli, 23-21, í hörkuleik.

Jafnt var á flestum tölum í fyrri hálfleik og framan af þeim síðari, en í stöðunni 14-14 kom frábær kafli hjá Austurríkismönnum. Þeir skoruðu fimm mörk í röð og breyttu stöðunni í 19-14.

Austurríki náði mest sex marka forskoti, 22-16, þegar rúmar sjö mínútur lifðu leiks og það bil náðu Bosníumenn ekki að brúa þrátt fyrir ágæta viðleitni.

Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Austurríki í höfn en liðið er nú í 3. sæti B-riðils með tvö stig líkt og Bosnía sem vann Íran í gær með fimm marka mun, 30-25. Makedónía og Króatía eru í tveimur efstu sætum riðilsins en þau hafa unnið báða leiki sína í mótinu til þessa.

Viktor Szilagyi og Raul Santos voru markahæstir í liði Austurríkis í kvöld með fjögur mörk hvor.

Dejan Malinovic skoraði mest fyrir Bosníu eða sex mörk.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×